Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 413
BUNAÐARRIT
403
valni, stuðla að því, að koma betra skipulagi en áður á
tilraunastarfsemina, og það ber að þakka en ekki víta.
Mér sýnist því, að fjárhagsnefndin hafi skotið nokkuð
fram hjá réttu marki, og hefði átt að beina örfum sinum
fremur að fyrri Búnaðarþingum en að stjórn félagsins,
út af tilraunastarfseminni.
Þá finnur nefndin að því — og telur mjög óformlegt —
að reikningar félagsins voru ekki lesnir upp og skýrðir
af stjórninni, og hyggur það vera fasta venju nú orðið.
Ég held ég megi segja, að í seinni tíð að minnsta
kosti, hafi það verið föst venja — þangað til nú — að
reikningar félagsins væru lesnir upp á Búnaðarþingi, og
ég þykist líka mega fullyrða, að raddir hafi heyrst um
það, frá fulltrúum á Búnaðarþingi 1931, að þetta væri
óþarft og aðeins til tafar.
Nefndin virðist ganga alveg fram hjá því, að það heíir
nú lengi verið föst venja, að Ieggja fram á Búnaðarþingi
starfsskýrslur frá stjórn og starfsmönnum, þar sem gerð
er allrækileg grein fyrir störfum félagsins milli þinga, og
í þetta sinn voru þessar skýrslur 170 prentaðar síður,
og gefa þessvegna miklu fyllra yfirlit yfir starfsemi fé-
lagsins, en hægt væri að gefa í ræðu. Og mér sýnist
þessi aðferð engu óformlegri en sú, sem þjóðfélagið sjálft
hefir, þar sem er »fjárlagaræðan«, en hana hefir for-
maður fjárhagsnefndar, sem er gamall þingmaður, lík-
lega haft í huga.
Hinsvegar er það vitanlega á valdi Búnaðarþings að
ákveða, að lesa skuli þar upp reikninga félagsins, og
fylgja þeim úr hlaði með ræðu, ef það telur sér ekki
nægja reikningana sjálfa, fjölritaða, og prentaðar skýrslur
í höndum hvers fulltrúa, og auk þess fjölritaða skrá, er
sýnir hlið við hlið fjárveitingu og fjárgreiðslu á hverjum
einstökum gjaldalið félagsins.
Metúsalem Stefánsson.