Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 414
BÚNAÐARRIT
Frá ferö minni til Islands.
Árangur af nokkrum bráðabirgða
jarðvegs-rannsóknum.
Eftir próf. Fr. Weis.
Þann — því miður allt of stutta — tíma, er ég dvaldi
á íslandi, til þess að halda nokkra fyrirlestra við Há-
skóla Islands, gafst mér tækifæri til að ferðast dálítið
um í nágrenni Reykjavíkur, út á Reykjanes, inn með
suðurströnd Hvalfjarðar, til Þingvalla og austur að
Hlíðarenda og Múlakoti í Fljótshlíð. Það var því, eins
og gefur að skilja, að eins lítill hluti hinnar allvíðlendu
eyju, sem ég gat séð. Sá tími, sem dvöl mín stóð yfir,
— síðari hluti maímánaðar, — var ef til vill ekki heppi-
legur, því að tré og runnar voru að laufgast og jurta-
gróðurinn að vakna af dvala vetrarins. En veðrið var
aftur á móti óvenju milt og mikið sólskin, loftið tært,
svo útsýnið var dásamlegt. Að jafnaði rigndi á næturnar,
svo gróðrarskilyrðin voru hin beztu og var undravert að
sjá, hve allt óx og grænkaði meðan ég stóð þar við.
Þótt ferðir mínar um landið væru stuttar, þá náðu þær
þó yfir ólík héruð og sveitir, þannig að ég samt sem
áður sá töluvert af jarðvegstegundum þeim, sem ein-
kenna Island. Brunnin og gróin hraun, móa og mela,
mýrar og sund, holt og sanda, skóga og ræktað land,
bæði þýft og slétt, hveri og laugar, sem allt saman er
einkennilegt og einstakt, vegna uppruna þess af völdum
elds og íss. Því vakti það athygli og umhugsun náttúru-
fræðings, er var nýlunda að sjá flest af þessu. Það er