Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Page 19

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Page 19
BER AÐ TÚLKA FRONĒSIS ÚT FRÁ SIÐFERÐILEGRI STAKHYGGJU ER BÝÐUR ÖLLUM ALGILDUM REGLUM BIRGINN? Fronēsis er hjá Aristótelesi vitræn dygð sem þjónar hinum siðrænu dygðum. Þær síðarnefndu gera fólki kleift að „miða á rétta markið“; sú fyrrnefnda ber skynbragð á markmiðið og kennir fólki að „nota réttu aðferðina“ (1995, II, bls. 90 [1144a]). Fronēsis tekur ekki aðeins til hins altæka því að fronēsis varðar athafnir „og athafnir varða hið einstaka“ (1995, II, bls. 78 [1141b]). Þessi vitræna dygð hjálpar okkur þannig að veita siðrænu dygðunum réttan farveg: fyrst að finna farveginn og svo að rata hann frá upptökum til ósa. Fronēsis er í raun „ástand sem lýtur sönnum rökum og varðar athöfn sem tengist mannlegum gæðum og meinum“ (1995, II, bls. 71 [1140b]). „Af þessum sökum skiptir ekki litlu máli hverju við venjumst frá blautu barnsbeini, heldur miklu og reyndar öllu“ (1995, I, bls. 254 [1103b]), því þótt síðar meir megi nota fronēsis til að leiðrétta þær venjur (siðferðilegu hneigðir) sem okkur voru innrættar í bernsku þá öðlumst við enga hvöt til slíkra leiðréttinga nema við höfum verið vanin á mikilvægi þeirra. Með öðrum orðum: Þó að fronēsis sé vitræn fremur en siðræn dygð/hegðunarvenja þá er hún einnig sjálf „venja“ sem skapast við endurtekna beit- ingu þess hugsunarháttar sem hún inniber. Fronēsis útheimtir því reynslu og þroska. Þetta eru nokkrar af staðhæfingum Aristótelesar um fronēsis sem talsmenn FPV gera sér mat úr. Skilningur þeirra á fronēsis er sá að það sé opið, sveigjanlegt hugtak er hafi djúptæka þýðingu fyrir menntun. Áherslan er þá lögð á samband hugtaksins við hin sjónrænu, aðstæðubundnu blæbrigði mannlegrar reynslu. Erfitt er að þýða fronēsis á íslensku án þess að gefa þetta eða hitt í skyn um merkingu þess. „Siðvit“ er fallegt orð en nokkuð víðfeðmt og bindur hugtakið að auki eingöngu við siðferði- legar ákvarðanir (sem ég tel að vísu rétt en þarfnast rökstuðnings síðar). „Hyggindi“ (sem notað er í íslensku þýðingunni frá 1995) er óheppilegt að því leyti að orðið „hyggindi“ er oft í nútímamáli viðhaft sem samheiti „klókinda“ („hygginda sem í hag koma“) sem eru óháð og stundum andstæð siðgæði (Aristóteles ræðir raunar slík „klókindi“ og greinir frá „hyggindum“, 1995, II, bls. 91–92 [1144a]). „Glöggskyggni“ nær vel hinum sjónræna þætti en er siðferðilega hlutlaust. Ég mun því einfaldlega halda áfram að nota „fronēsis“ óþýtt. Til að taka aftur upp FPV-þráðinn þá benda tals- menn þess viðhorfs á að þótt fronēsis feli í sér hagnýta þekkingu þá sé það „ekki sjálft kenning“, né heldur „beiting kenningar á einstök tilvik“ (Dunne, 1993, bls. 157). Hag- nýtur siðferðilegur leiðarvísir getur ekki að fullu náð yfir eða innifalið einstök tilvik, af þeirri einföldu ástæðu að slík tilvik eru seld undir ákveðna óræðni sem ekki er hægt að komast til botns í nema með því að takast á við tilvikin sjálf þegar þau ber fyrir okkur (1993, bls. 311). Þetta er fráleitt, að dómi Dunnes, ljóður á ráði fronēsis; nei, þvert á móti er það „stærsti kostur“ þess (1993, bls. 314). Lokahnykkurinn í FPV-túlk- uninni er svo að tengja fronēsis við kennslu sem praxis („gjörð“). Kennslustarfið er þá ekki lengur skilið sem dæmi um kenningu í framkvæmd. Rétt eins og ókleift er að skilja tiltekna siðareglu út af fyrir sig, nema með því að tengja hana við einstakar að- stæður á einstökum stað og tíma, eins er ókleift að skilja kennslustarfið almennt sem dæmi um kenningu (eða safn kenninga – í uppeldis- og kennslufræði o.s.frv.) sem K R I S T J Á N K R I S T J Á N S S O N 19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.