Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Qupperneq 51

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Qupperneq 51
Skólanámskrá í leikskóla Skólanámskrá fyrir leikskóla er ekki ætlað að vera námsgreinamiðuð eins og námskrá fyrir grunn- og framhaldsskóla. Spodek og Saracho (1994) segja bæði þroska- og kennslufræðikenningar liggja að baki námskrá í leikskóla. En þótt þær kenningar séu ólíkar eru þær oft teknar sem jafngildar. Að þeirra mati eru þroska- kenningar altækar (universal) og gilda fyrir börn í öllu samhengi og benda á lágmarks þroskaskilyrði. En kennslufræðikenningar eru nákvæmar og snúast um tiltækt nám í sérstöku samhengi og benda á hvernig hámarka má þroska og nám. Þroskakenningar sýna fram á margþætt áhrif sem breyta einstaklingum en kenningar um kennslufræði horfa á áhrif skólans á einstaklinga. Í Aðalnámskrá leikskóla (Menntamálaráðuneytið, 1999) segir að í leikskóla skuli leggja áherslu á skapandi starf barnsins og að ekki sé um beina kennslu að ræða sem stefni að ákveðinni fræðilegri þekkingu. Leikskólafræði séu fremur þroskamiðuð en fagmiðuð, með áherslu á leik barna sem náms- og þroskaleið, uppgötvunarnám. Val- borg Sigurðardóttir (1992) bendir á að leikskólakennarar eigi ekki að taka upp kennsluaðferðir sem kunna að henta kennurum í grunnskólum. Bernskan er að hennar mati sérstætt æviskeið á þroskaferli mannsins sem beri að virða. Hún bendir á að leikskólabörn þurfi góðan tíma til frjálsra og sjálfsprottinna leikja á eigin for- sendum, samfelldan tíma til þess og frið frá ótímabærum afskiptum fullorðinna. Í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi eru áherslur í leikskólastarfi líkar því sem tíðkast hér á Íslandi (Jóhanna Einarsdóttir, 2001). En formlegar aðalnámskrár fyrir leikskólastigið eru til staðar í þessum löndum. Bandarísku samtökin National Association for the Education of Young Children (NAEYC) setja fram leiðbeinandi viðmið fyrir leikskólauppeldi. Samkvæmt skilgreiningu þeirra inniheldur námskrá markmið leikskólastarfsins, áætlun um viðfangsefni fyrir börnin, dagskipulag, tiltæk gögn og notkun þeirra, skipulag viðfangsefna og hvernig dagleg störf eru nýtt sem reynsla til að læra af. Að þeirra mati eiga viðmið fyrir framkvæmd námskrár að endurspegla þá sýn að börn séu virkir nemendur sem nýta sér margþætta reynslu til að byggja upp skilning sinn á veröldinni í kringum sig (NAEYC, 1998). Harriet K. Cuffaro (1995) nálgast skilgreiningu námskrár út frá hugmyndum Johns Deweys og segir að hún verði til í samspili á milli barna og fullorðinna. Kennarar skapi námsumhverfið með því að velja efnivið, skipuleggja leikstofur, gera dagskipu- lag og með því að þekkja áhugasvið barnanna og bera umhyggju fyrir þeim. Þeir skipuleggja viðfangsefni og gera áætlanir um verkefni sem laða fram og styðja við áhugasvið barnanna og beina þeim að dýrmætri þekkingarleit og tilraunum. En hún bendir á að rammi námskrár og viðmið nái ekki yfir öll atriði, aðstæður og samræður í leikskólanum. Oft er talað um að í skólum séu í raun tvær skólanámskrár í gangi samtímis, annars vegar sýnileg og skráð og hins vegar dulin og óskráð námskrá (hidden curriculum). Dulda námskráin taki til þess sem barnið lærir í aðstæðum sem sjaldan eru skilgreindar í hinni formlegu námskrá. Mikilvægt þykir að hafa þetta í huga við gerð skólanámskrár og ræða vandlega. Sérstaklega beri að skoða hvernig hin þögla I N G V E L D U R H R Ö N N B J Ö R N S D Ó T T I R 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.