Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 52
þekking, óskráðar reglur og viðhorf móta starfið og þá sérstaklega duldu námskrána
(Félags íslenskra leikskólakennara, 2000).
NÁMSKRÁRGERÐ – LIÐUR Í SKÓLAÞRÓUN
Skólaþróun er hugtak sem gengur eins og ósýnilegur þráður í gegnum alla umræðu
um árangursríkt skólastarf. Margir líta á námskrárgerð sem einn stærsta þáttinn í
skólaþróun og álíta að allir skólar geti haft ávinning af skólanámskrárgerð vegna
þess að hún miðar að því að laga það sem miður hefur farið eða bæta skólastarf yfir-
leitt (Menntamálaráðuneytið, 1991).
Vinnu að gerð skólanámskrár má líkja við þróunarstarf. Ein af meginforsendum
þess að umbótaviðleitni beri árangur er að þróunarverkefni leiði til varanlegra
breytinga á skólamenningu og vinnubrögðum í skólum (Rúnar Sigþórsson, Börkur
Hansen, Jón Baldvin Hannesson, Ólafur H. Jóhannsson, Rósa Eggertsdóttir og Mel
West, 1999). Til þess að slíkt megi takast þurfi slík verkefni að ná til skólasamfélagsins
í heild, þjóna framtíðarsýn og stefnumiðum sem samstaða er um innan skólans og að
sem flestir starfsmenn taki beinan þátt í þeim. Samhæfa þurfi margskonar þætti
skólastarfsins þannig að úr verði skilvirk heild. Auk þess þurfi markviss forysta,
samstarf kennara, starfsþróun, mat og gagnrýnin endurskoðun á skólastarfinu og
áætlunargerð að ríma saman og styðja hvert annað til að þetta sé mögulegt.
Ein frjóasta gerð samvinnu í skólum skapast þegar skóli telur sig vera skóla sem
lærir og að slíku sameiginlegu námi er hægt að hlúa við ólíklegar og erfiðar aðstæður
að mati Russel (1996). Einkenni þessa skóla eru að starfsfólki jafnt sem nemendum er
gefinn kostur á námi í formi starfsþróunar. Hún segir jafnframt að hugmyndir að
baki skóla sem lærir leggi áherslu á áhuga einstaklinga og þá trú að allir þátttakendur
hafi sannan áhuga á gæðum og framförum (1996). Í sama streng taka Richert,
Stoddard og Kass (2001) og segja nám vera hjarta skólaþróunar. Og þegar skólafólk
lærir breytast vinnuaðferðir og menntastofnunin, sem það vinnur við, breytist. Þau
benda á að nám fer fram þegar fólk stendur andspænis nýjum hugmyndum og
reynslu og fær tækifæri til að ígrunda hvort tveggja. Þegar reynir á nýja þekkingu og
hugmyndir eykst skilningur þess.
Allar breytingar í stofnunum og skólum hafa áhrif á þá sem þar starfa. Gerð skóla-
námskrár krefst mikils framlags af starfsfólki og oft fylgja breytingar í kjölfar hennar.
Rust (1993) segir rannsóknir sýna að starfsfólk skóla bregðist gjarnan við nýbreytni á
þrjá mismunandi vegu. Þeir einfaldlega hafna henni; þeir láta líta út fyrir að þeir séu
að vinna samkvæmt henni en breyta engu í raun; eða þeir tileinka sér hana, aðlaga
hana skólanum og laga sig síðan að henni. Hún segir að hversu flóknar breytingarnar
séu og hvernig kennarar komi að þeim sé lykillinn að því hvert þessara þriggja við-
bragða muni ráða.
Við gerð skólanámskrár þarf að hugsa til framtíðar og að viðfangsefni taki mið af
því. Framtíðarsýn er lykill að framförum innan skólans því hún vísar veginn, segir
Ólafur H. Jóhannsson (2003). Hann bendir jafnframt á að framtíðarsýn auðveldi gerð
skólanámskrár og auðveldi mönnum að taka ákvarðanir um áhersluatriði og for-
Þ Ö G U L Þ E K K I N G F Æ R M Á L – S K Ó L A N Á M S K R Á R G E R Ð Í L E I K S K Ó L A
52