Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Page 61
Námskráin er hluti af handbókinni og þegar hún er skoðuð þá er þró-
unarverkefnið okkar hugmyndafræði og leiðarljós auk þeirra vinnu-
bragða sem tíðkast í leikskólanum. Þróunarverkefnið var ef til vill
nokkurs konar þögul þekking sem varð sýnilegri með tilkomu
námskrárinnar.
Rúnar Sigþórsson o.fl. (1999) segja m.a. að ein af meginforsendum þess að umbóta-
viðleitni beri árangur sé að þróunarverkefni leiði til varanlegra breytinga á skóla-
menningu og vinnubrögðum í skólum.
Í niðurstöðum kemur fram að þroskakenningar voru ekki sérstaklega ræddar við
gerð skólanámskrárinnar. Starfsmenn horfa til Johns Deweys við mótun á hug-
myndafræði leikskólans en við gerð skólanámskrárinnar var ekki sérstaklega farið
yfir hugmyndafræði hans eða hún spegluð í starfinu. Ákveðin mótsögn kemur fram
þegar starfsmenn láta að því liggja að ekki séu allir starfsmenn jafnöruggir um hvað
felist í hugmyndafræði hans eða hversu vel starfsmenn leikskólans þekki hana, en
jafnframt virðast þeim starfshættir sem liggja að baki þróunarverkefninu ljósir og séu
einmitt þeir sem starfsmenn tileinka sér þegar þeir byrja í leikskólanum. Þá vaknar
sú spurning hvort starfsmenn leikskólans skorti þjálfun í að ræða um tengingu
kenninga og hagnýtingar í starfi. Einn leikskólakennari bendir á að í námi hans hafi
fræðilegi þátturinn verið það sem flestir voru hræddir við. Samkvæmt Spodek og
Saracho (1994) þá liggja bæði þroska- og kennslufræðilegar kenningar að baki
námskrá leikskóla og sé því þýðingarmikið fyrir kennara að þekkja þroskaferil barna.
Sú þekking auki skilning þeirra á hvað börn eru fær um að læra, hvernig þau læra á
hverju þroskastigi og hvernig kennarar geta metið það og unnið áfram með reynslu
þeirra og þekkingu.
Aðalnámskrá leikskóla var höfð að leiðarljósi við gerð skólanámskrárinnar eins og
lög gera ráð fyrir. Athyglisvert er að fram kemur að við námskrárgerðina hafi Aðal-
námskráin verið lesin með öðru hugarfari en áður að því leyti að starfið í leikskólan-
um hafi nú verið speglað í innihaldi hennar.
Hvernig verður skólanámskrá virk í leikskólastarfi?
Þegar litið er á niðurstöður eru nokkrir meginþættir í starfi leikskólans sem líta má á
sem gangverk námskrárinnar í daglegu starfi. Um er að ræða sátt starfsmanna og
virðingu fyrir hugmyndafræði leikskólans, skráð vinnugögn og viðmið fyrir vinnu-
brögð, þróun skólanámskrár og endurmats, markvissa aðlögun nýrra starfsmanna,
skipulagða starfsþróun fyrir starfsmenn leikskólans og vettvang fyrir umræður og
ákvarðanatöku.
Skólanámskráin er rammi utan um starfið og er notuð við áætlanagerð í leikskól-
anum. Sátt ríkir um hugmyndafræðina og starfsmenn leggja áherslu á að vera sjálf-
um sér samkvæmir í vinnu og fylgja stefnu leikskólans. Ánægja er með þann sveigj-
anleika sem námskráin gefur og svigrúmið sem starfsmenn fá til að vinna með eigin
hugmyndir eins og fram kemur hjá Emmu deildarstjóra:
I N G V E L D U R H R Ö N N B J Ö R N S D Ó T T I R
61