Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Side 111
skólanum í sjávarþorpi finnst nemendum byrjendur í grunnskóla ókyrrari nú en þeir
voru á þeirra aldri. Einelti sé sjaldgæft og þau könnuðust ekki við ofbeldi í skólanum.
Í sveitaskólanum eru nemendur frekar á því að byrjendur séu ókyrrari en áður.
Krakkar séu frjálslegri núna, tjái sig betur en séu líka orðljótari með hverju árinu.
Nemendur segja að agi í bekkjum sé misjafn og það fari eftir kennurum. Í spurninga-
lista voru nemendur inntir eftir því hvort kennarar gangi eftir að nemendur virði
skólareglur. Langflestir, eða 65%, töldu hæfilega gengið eftir því að reglur væru virt-
ar meðan 31% þótti eftirlitið of mikið en 4% sögðu það of lítið.
Svör foreldra og starfsfólks í lokaviðtali
Í þéttbýlisskólanum telja foreldrar að börn séu ókyrrari og óhamdari en áður og noti
ljótara orðbragð. Foreldrar ýja að áhrifum leikskólans í þessum efnum, telja að hann
agi börnin ekki nóg en meginástæðu telja þeir að megi rekja til breyttra uppeldisað-
stæðna, foreldrar hafi minni tíma með börnum sínum en áður. Í skólanum í sjávar-
þorpi töldu foreldrar sjálft hegðunarmynstrið hafa breyst og líklega væru mörg barn-
anna ókyrrari og hefðu minni einbeitingu. Sem ástæður eða skýringar eru nefndar
minni samvistir foreldra með börnunum, virðingarleysi fyrir fullorðnum, agaleysi
almennt í íslensku samfélagi, misskilið frjálsræði í uppeldi og tískusveiflur. Að þeirra
áliti er ofbeldi nú harðara, miskunnarlausara, fljótt gripið til hnífa og barefla og fyrir-
myndir um það sóttar í kvikmyndir, myndbönd og tölvuleiki. Í sveitaskólanum eru
foreldrar á sama máli og nemendur um ókyrrð og ljótt orðbragð. Þeir leituðu
skýringa í aðhaldsleysi og minnkandi samveru barna með fullorðnum, hóflausu
glápi á skaðlegt myndefni og rangsnúnu frjálsræði. Einelti er að þeirra mati sjaldgæft
en ofbeldi í einstökum félagshópum miskunnarlausara en áður.
Í þéttbýlisskólanum eru kennarar á sama máli og foreldrar um að börn séu frakkari
en áður og eigi erfitt með að hlíta settum reglum. Þetta eigi einkum við um yngstu
nemendurna. Kennarar telja að á síðustu árum megi greina betri hegðun og álíta að
hugsanlega skýringu megi finna í því að leikskólinn hafi tekið þessi mál fastari
tökum. Í skólanum í sjávarþorpi höfnuðu kennarar því ákveðið að nemendur væru
almennt ókyrrari nú en áður en hegðun og framkoma væri með öðrum brag. Þeir
segja að einelti sé lítið og markvisst unnið gegn því. Í sveitaskólanum eru kennarar
þeirrar skoðunar að byrjendur séu ókyrrari, einkum sé ljótt orðbragð og ókurteisi
algengari. Skýringar þeirra á þessari þróun eru mjög á sama veg og foreldra, en
einelti sé hverfandi og strax á því tekið.
Í þéttbýlisskólanum eru aðrir starfsmenn en kennarar sama sinnis um að yngstu
börnin séu ókyrrari en áður. Þeir rekja það til uppeldisaðstæðna; minni samvista við
foreldra og svo hafi myndbönd og tölvuleikir neikvæð áhrif. Þessir viðmælendur
telja að talsvert sé um einelti í skólanum og að stúlkur taki meiri þátt í ofbeldi en áður
var. Í skólanum í sjávarþorpi töldu aðrir starfsmenn en kennarar ókyrrð og slæma
hegðun í heildina tekið varla meiri en áður en börnin leyfðu sér meira, fullorðnu fólki
sé sýnd minni virðing og tillitsleysi sé almennt við náungann. Í sveitaskólanum eru
aðrir starfsmenn en kennarar varkárir í áliti sínu. Þeir töldu slæma hegðun og ljótt
orðbragð að mestu bundið við fáeina einstaklinga, einelti kæmi að vísu fyrir en strax
væri brugðist við því.
J Ó N A S P Á L S S O N , A M A L Í A B J Ö R N S D Ó T T I R O G Ó L A F U R H . J Ó H A N N S S O N
111