Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 137

Uppeldi og menntun - 01.01.2005, Síða 137
II Innviðir kerfisins skipta auðvitað máli. Það er mikilvægt að velta því fyrir sér hvernig háskólarnir þróast þegar horft er á þá innan frá. Hvers eðlis er þróun háskólanna og hvað rekur hana áfram? Ég tel að háskólar í Evrópu feti mjög svipaðar slóðir og háskólar í Norður-Ameríku, þeir evrópsku séu aðeins nokkrum áratugum á eftir (Jón Torfi Jónasson, 1999, 2000b). Jafnframt tel ég að háskólar í Evrópu séu flestir á sama skriði, það er í átt að viðmiði rannsóknarháskóla. Nú eru evrópsku skólarnir vissu- lega komnir mjög mislangt á þeirri braut; sumir hafa verið þar um langa hríð (þó fæstir mjög lengi), aðrir eru rétt komnir af stað og enn aðrir eiga enn nokkuð í land. En allir eru á sömu leiðinni. Háskóli Íslands er kominn langlengst íslensku háskól- anna, en flestir hinna telja sig vera komna nálægt því að skilgreina sig sem rannsókn- arháskóla. Nákvæmlega sama þróunin er á öllum Norðurlöndunum. Þar eru háskól- ar komnir mislangt en mér finnst það ekki leyna sér að mjög margir hafi það mark- mið að vera, eða verða háskóli í fremstu röð. Þessi ásetningur er að mínu mati ein skýringin á því að háskólakerfi þessara landa vaxa nokkuð hratt og þróast á svipað- an hátt. Skólar flytjast til innan kerfisins, þá rekur í átt að hærri virðingarstöðu innan háskólageirans og sú staða ákvarðast að verulegu leyti af rannsóknum, umfangi þeirra og sýnileika (Gyða Jóhannsdóttir, 2001; Jón Torfi Jónasson, 2004 desember; Morphew, 2000). Ég hef kallað þetta kerfisrek eða fræðirek stofnana.4 Þannig flytjast skólar eða tiltekin verkefni sem eru á framhaldsskólastigi, á millistig eða strax á há- skólastig. Þar til viðbótar færast viðfangsefni sem eru á grunnstigi háskólastigs á framhaldsstig. Þetta gerist mishratt í ólíkum greinum og löndum en gerist, þegar á heildina er litið, hægt og sígandi alls staðar. Þetta á einkum við um starfsnám af ýmsu tagi og þess vegna hefur háskólastig Vesturlanda fengið það orð á sig að sinna starfs- menntun betur en áður, en ég tel það fyrst og fremst stafa af því að starfsmenntun sem ekki var þar er nú komin þangað. Þetta skýrir sumt í þeim vexti sem við höfum séð; skólar sem voru á framhaldsskólastigi eru nú á háskólastigi og nemendurnir þá taldir með því síðarnefnda. Þessi tilfærsla tengist sterku afli sem ég tel að tengist mjög vexti háskólastigsins. Það er sókn nemenda í prófgráður (Brown, 1995; Collins, 1979; Jón Torfi Jónasson, 2004b; Labaree, 1997).5 Vonandi hafa nemendur áhuga á inntaki þess sem þeir læra og eru þess vegna áfjáðir í að til þeirra séu gerðar sem mestar kröfur, fyrir þá séu lögð krefjandi og gagnleg verkefni og fyrir bragðið víkki þeir sjóndeildarhring sinn og nái tökum á margvíslegri færni sem gagnast þeim síðar í lífi og starfi. En það er alveg ljóst að margir þeirra eru jafnframt, og ekki síður, að sækjast eftir viðurkenningunni, vottorðinu um að þeir hafi lokið háskólanámi, t.d. BA eða svipaðri gráðu eða MA eða sambærilegri gráðu. Einhver hluti nemenda vill gjarnan fara í fræðilegt nám en mjög stór hluti þeirra vill leggja stund á nám sem er augljóslega gagnlegt í hefðbundinni merkingu: margir vilja fara í starfstengt nám. Vandinn er sá að þetta sama fólk vill líka fara í nám sem hefur bærilegan virðingarsess, hvernig svo sem það huglæga J Ó N T O R F I J Ó N A S S O N 137 4 Á ensku hafa verið notuð orðin academic drift og institutional drift. 5 Á ensku er einkum notað orðið credentialism og þá vísað í átaka- eða samkeppniskrafta, status competition mechanisms.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.