Morgunn - 01.12.1935, Blaðsíða 3
MORGUNN
129
Kirkjan og sálarrannsóknirnar.
Erindi eftir Einar H. Kvaran.
Flutt að Undirfelli 18. ágúst 1935.
Eg er mjög þakklátur fyrir það, að fulltrúar Guðbrands-
deildar Prestafélags íslands hafa mælst til þess, að eg
kæmi á þennan fund þeirra og segði hér nokkur orð. Eg
finn til þess, að það er mér sæmd. Þó er þakklætis-tilfinn-
ingin ekki aðallega af því sprottin, heldur einkum af hinu,
að eg tel þessi tilmæli vott um góðvild til þess málefnis,
sem eg hefi tekið að mér að halda fram með þjóð vorri.
Þeir, sem lagt hafa fram krafta sína til þess að halda uppi
Sálarrannsóknarfélagi íslands hafa ekki átt aðra ósk heitari
en þá, að þeim væri gerður kostur á að vera í samvinnu
við kirkju landsins. Lítil merki hafa hingað til sést þess,
að til þess væri ætlast. Til þeirra fundarhalda, sem kirkj-
unnar menn hafa stofnað til í því skyni að glæða trúar-
og kirkjulíf, hefir ekki verið óskað eftir fulltrúum frá Sál-
arrannsóknafélaginu, og hefir þó það félag um 17 ár hald-
ið uppi starfsemi til eflingar trúnni á þann æðra heim, sem
Jesús Kristur boðaði, með fundahöldum, fyrirlestrum, um-
ræðum, útgáfu timarits, og á síðari árum merkilegum til-
raunum til þess að leita sannana fyrir framhaldslífi mann-
anna. Mér hefir þótt þetta því eftirtektarverðara, sem leit-
að hefir verið samvinnu í þessu efni hjá mönnum útan
prestastéttarinnar, sem ekki hafa allir sýnt neinn áhuga
á kristindóms málum, og óskað hefir verið eftir leikmanna-
starfsemi til stuðnings kirkjunni.
Eg læt ekki þessarar staðreyndar getið í neinu ádeilu-
skyni. Eg hefi enga tilhneiging til neinna ýfinga. En eg
get ekki bundist þess að minnast hennar, sem andstæðu
við það frjálslyndi, sem prestar Húnavatns- og Skagafjarð-
arsýslna sýna mér í dag.
9