Morgunn - 01.12.1935, Blaðsíða 86
212
MORGUNN
ur engri annari heimspeki á baki, og hefir aldrei komið
fram hjá neinum trúarbrögðum, sem mér er kunnugt um«.
Mikla eftirtekt hefir það vakið, að fjórir
Geðveikralækn- Lundúnalæknar hafa ráðið af að reyna að
um í London. komast að því að fullu, hvort rétt sé sú
kenning að sumar tegundir af geðveiki stafi
af áhrifum frá framliðnum mönnum. Þeir hafa fengið miðil
sér til aðstoðar og höfðu gert allmargar tilraunir í síðast-
liðnum maímánuði. Einn af þessum læknum, Dr. Oscar
Parkes, lýsti þessum tilraunum í erindi, sem hann flutti í
London 16. maí. Læknarnir tóku sér til fyrirmyndar aðferð
Dr. Carls Wickland í Los Angeles í Bandaríkjunum, settu
sterkan straum af rafmagni á sjúklinginn. Dr. Wickland
álítur, að það hafi þau áhrif að trufla eða reka burt ver-
una, sem geðveikinni veldur, og á eftir sé stundum unt að
ná tali af verunni með miðli og koma fyrir hana vitinu
að gera ekki þennan óskunda. Tvo sjúklinga hafði tekist
að lækna með þessari aðferð, þegar Dr. Parkes flutti er-
indi sitt. Um báða þessa sjúklinga voru læknar vonlausir
áður en þessi tilraun var gerð, og Dr. Parkes vonaði að
læknastéttin mundi verða fáanleg lil þess að hugleiða af
nýju afstöðu sína til tilgátunnar um áhrifin, er geðveikir
sjúklingar geti orðið fyrir frá öðrum heimi.
Dr. Parkes sagðist ekkert vita, hvernig á
Frásögn ver- . stæ5j ag verurnar, sem geðveikinni
unnar, sem °
veikinni olli. valda, gætu ekki staðist rafmagnstrauminn.
En í erindí sínu las hann eftirfarandi frá-
sögn, sem Dr. Wickland hefir gefið út um það, hvað ein
veran hefir sagt, eftir af hún var orðin laus við líkama
sjúklingsins, þegar hún kom aftur til þess að segja sögu
sína af vörum miðilsins Mrs. Wickland:
»Eg hefi verið svo kynleg um langan tíma. Hvað er
það, sem gengur á? Það hefir stundum verið svo undar-
legt. Það hafa verið eldingar og þrumur, og það hefir
valdið mér hræðilegu ónæði; eg hefi ekki fengið að vera
ein eina mínútu. Þær hafa verið óhemjulegar, þessar þrum-