Morgunn - 01.12.1935, Blaðsíða 85
MORGUNN
211
sé afl á ferðinni og það flytur hann lengra og lengra. Watts
horfði á lok lyftast af katli, og það varð til þess að hann
fann upp göfuvélina. Galvani athugaði fætur á froski og
það varð undanfari raffræðinnar. Vér þekkjum öll sög-
una um Newton, þegar hann sá eplið detta, og samband
þess atburðar við það að fundin var upp kenningin um
þyngdarlögmálið. Lítið þvi ekki fyrirlitningaraugum á borð-
hreyfingarnar, því að þær koma hugum mannanna inn á
nýjar brautir. Til þess voru þær ætlaðar, og til þess eru
þær enn.«
Ste t-n fr- »Vér höldum því fram, að þung alda af
öðrum'heirni nýíum sannleika hafi komið með skeytun-
um frá öðrum heimi. Efniskendu fyrirbrigð-
in hafa aðeins verið eins og símabjalla, sem hefir hringt
til þess að vekja athygli þess sem menn vilja tala við. í
stað þess að fara að heyrnartólinu og veita skeytinu við-
töku höfum vér árum saman hlustað á simabjölluna og
spurt, hvort nokkur hafi hringt eða hvort enginn hafi hringt
eða hvort sjónhverfingamenn gætu hringt svona eða hvort
þeir gætu það ekki. Þessi skeyti tjá sig koma frá framliðn-
um mönnum og þau koma með lýsingar á lifinu hinumeg-
in og eru um sannindi trúarbragðanna, eins og á þau er
litið úr meira víðsýni tveggja veralda. Yfirleitt er þessi
boðskapur ekki byltingakendur, heldur virðist hann styrkja
hinn kristna grundvöll, ef tekið er út af þeim grundvelli
alt, sem er lítilfjörlegt og þröngsýniskent, og hann er færð-
ur svo út að hann samsvari kenningum hins mikla fræð-
ara, er lét hann eftir sig sem arfleifð sína«.
. . »Afskiftum guðs af heiminum var ekki lok-
brigöuraTtil æðri ið {yrir 2000 árum °g ekki er nein
heimspeki. ástæða til að ætla að sannleikur hans komi
ekki smámsaman í pörtum, eftir því sem
mannlegur heili þroskast og verður hæfari til að veita
honum víðtöku. í vorum augum eru efniskendu fyrirbrigð-
in eins og stafrofskver. Vér höldum áfram frá þeim til
hinna æðri bókmenta og hinnar æðri heimspeki, sem stend-
14*