Morgunn - 01.12.1935, Blaðsíða 10
136
MORGUNN
sem var óaðskiljanlegur hluti af kenning Krists, íbúandi
partur af lífi frumkristninnar, óhjákvæmilegur fyrir tilveru
Krists rikis á jörðunni, enda þessu heitið fylgjendum hans
um allar aldir.
2. Að sýna það, að eftir að þessi máttarverk hafa
nærri því að öllu leyti legið niðri um margar aldir, eru
þau af nýju að koma fram vor á meðal.
3. Að efla lifandi trú, og án hennar verður starfsemi
heilags anda áhrifalaus.
Þeir kalla sig ekki spíritista, enda táknar spíritista-
nafnið í hugum margra Englendinga sérstakan skipulagðan
trúarbragðaflokk, kirkjudeild, líkt og Presbyterianar, Meþo-
distar, Baptistar eru. Þeir eru prestar í þjóðkirkju Englands.
En þeir halda þvi fram, að samband við framliðna menn
sé mikilvægur þáttur í samfélagi heilagra, sem kirkjan ját-
ar og kennir. Og þeir hafa myndað bandalag við flokk af
spíritistum, sem eru kirkjunni góðviljaðir, og hafa komið
sér saman við þá um samvinnugrundvöll, sem eg skal nú
lesa ykkur:
1. Vér trúum því, að Jesús Kristur hafi sannað fram-
haldslífið á sínum hérvistardögum með því að tala við
svokallaða dána menn (Móse og Elías) og með því að
koma sjálfur aftur til fylgismanna sinna eftir andlát hins
jarðneska líkama síns.
2. Vér trúum því að á vorum dögum hafi fjöldi manna
fengið sannanir fyrir framhaldslífinu með sálrænum sönn-
unargögnum.
3. Vér trúum því, að til þess sé ætlast, að vér leitum
huggunar, fræðslu og leiðsagnar með sambandi við þá,
sem eru á öðrum tilverustigum.
4. Vér trúum því, að vér eigum að búa oss undir
slíkt samband með bæn og hugleiðing, eins og vér ættum
reyndar að gera það á hverjum degi, áður en vér hittum
jarðneska menn.
Fyrir takmarkinu, sem að er kept, hefir verið gerð sú
grein, að í sambandi við hverja kirkju landsins sé prestur