Morgunn - 01.12.1935, Blaðsíða 91
M O R G U N N
217
Þjónusta englanna.
Eftir frú Joy Snell.
IV.
Óánægjulífið — lífið, sem mér fanst ég hafa lifað
svo lengi, þó að það hefði í raun og veru verið lítið meira
en tvö ár — virtist hafa yfirgefið mig. Hugsanir mínar,
sem höfðu snúist um mina eigin sorg og eymd, fóru að
komast inn á nýja farvegi. Eg fór að koma auga á annars
konar líf — lif, sem gæti verið öðrum til einhvers gagns.
Eg gat aftur beðist fyrir, eg gat aftur gefið mig á vald
hinum mildu áhrifum frá mínum ósýnilega ráðgjafa. Og
eins og viðkvæði í einhverju áleitnu lagi komu þessi orð
til min aftur og aftur: »Eg mun hugga þig og fá þér verk
að vinna fyrir mig«.
Þetta verk var alveg við höndina. Eg var tekin í
spítalann til reynslu. Eg gegndi skyldum mínum með ánægju,
og þegar eg var að reyna að lina þjáningar annara manna,
öðlaðist eg þá blessun að gleyma sjálfri mér. Návist mins
ósýnilega verndara varð mér verulegri og eg varð næmari
á hans Ijúfu leiðsögn. Oft var eg mér þess meðvitandi, að
mér væri hjálpað til að vinna þau verk, sem mér fundust
ofurefli líkamlegum kröftum minum, og að mér væri aftrað
frá því að fara rangt að í ákefðinni eftir að hjálpa
einhverjum vesölum sjúklingi. Mér fanst stundum fljótræðis
hreyfingum mínum væri haldið í skefjum með því að
aftrandi hönd væri lögð ofan á höndina á mér. í önnur
skifti fanst mér rödd hvísla í eyra mér: »Nei gerðu ekki
það, gerðu þetta«. Og samstundis vissi eg, hvað rétt var
að gera, og hvernig ætti að gera það.
Það eru nokkurrar hliðar á spítalastarfi. sem gestir,
er snöggvast koma inn og sjá aðeins sjúklingana í tárhrein-
um og snotrum rúmum, vita ekki neitt um. Sumt af því,