Morgunn - 01.12.1935, Blaðsíða 17
MORGUNN
143
aldahvörf slíkur boðskapur hlaut að marka í trúar og vit-
undarlifi Gyðingaþjóðarinnar. Þeir trúðu víst fæstir á neitt
alsjáandi vald. Guð var í þeirra augum svo fjarlægur
mönnunum, að hann hafði engin minstu áhrif á stjórn
heimsins. Þeir voru hættir að trúa á herguð sálmanna, sem
barðist með þjóðinni og fyrir hana gegn óvinum hennar.
Nú trúðu þeir að hann sæti svo hátt að engir kveinstafir
mannanna næðu til hans. Þeir trúðu heldur ekki á fram-
haldslif öðru vísi en sem einhverja skugga tilveru, sem
þeir gerðu sér ekki ljóst, hvernig væri háttað. Allrasízt
trúðu þeir því að menn öðluðust við dauðann neina þá
hæfileika sem þeir ættu ekki í þessu lífi; fremur var það
trú þeirra að næsta tilvera stæði rúmri skör lægra en
þessi, sem vér lifum í hér. ÖII þessi lög og reglur, jafnt
trúarlegs sem veraldlegs eðlis, voru miðuð við þessa jarð-
vist eingöngu. Að mönnum liði sem bezt og allir mættu
vera óhultir um þau gæði, sem þeim hafði tekist að afla
sér. Lesið boðorðin. Ekkert einasta þeirra bendir í aðra
átt en þessa. Það er verndin yfir lífi, eignum og mannorði,
sem þau leggja áherslu á og svo að ekki megi tilbiðja
aðra guði en Jahve, því að þá reiðist hann og sleppir hend-
inni af sinni útvöldu þjóð. Alstaðar eru það eiginhagsmun-
ir þessa lifs, sem sitja í fyrirrúmi fyrir öllu. Gyðingar mið-
uðu trú sina alveg eingöngu við þessa jarðvist. Ekkert gat
verið þeim fjarlægara en áfellast menn fyrir óunna hluti. Það
voru verkín ein og ekkert annað, sem gat haft áhrif á líf
þeirra hér og hvað kom það svo við þeim eða Guði, hvað
fram fór í leyndum hugans eða jafnvel hvað gerði til með
þau verk, sem ekki urðu opinber? Svona munu líka flest
trúarbrögð heimsins á þeim tímum hafa litið á málið og
mennirnir skildu þetta svo dæmalaust vel. Það var í sam-
ræmi við alla þá sýnilegu tilveru og annað skildu þeir ekki.
Það er of lint að orði kveðið að mennirnir hafi mis-
skilið Krist, þegar hann kom fram með boðskap sinn og
dæmdi alt þetta, sem þeir höfðu af fremsta megni reynt að
varðveita, algerlega einskisverða hluti. Eiginhagsmunirnir,sem