Morgunn


Morgunn - 01.12.1935, Page 91

Morgunn - 01.12.1935, Page 91
M O R G U N N 217 Þjónusta englanna. Eftir frú Joy Snell. IV. Óánægjulífið — lífið, sem mér fanst ég hafa lifað svo lengi, þó að það hefði í raun og veru verið lítið meira en tvö ár — virtist hafa yfirgefið mig. Hugsanir mínar, sem höfðu snúist um mina eigin sorg og eymd, fóru að komast inn á nýja farvegi. Eg fór að koma auga á annars konar líf — lif, sem gæti verið öðrum til einhvers gagns. Eg gat aftur beðist fyrir, eg gat aftur gefið mig á vald hinum mildu áhrifum frá mínum ósýnilega ráðgjafa. Og eins og viðkvæði í einhverju áleitnu lagi komu þessi orð til min aftur og aftur: »Eg mun hugga þig og fá þér verk að vinna fyrir mig«. Þetta verk var alveg við höndina. Eg var tekin í spítalann til reynslu. Eg gegndi skyldum mínum með ánægju, og þegar eg var að reyna að lina þjáningar annara manna, öðlaðist eg þá blessun að gleyma sjálfri mér. Návist mins ósýnilega verndara varð mér verulegri og eg varð næmari á hans Ijúfu leiðsögn. Oft var eg mér þess meðvitandi, að mér væri hjálpað til að vinna þau verk, sem mér fundust ofurefli líkamlegum kröftum minum, og að mér væri aftrað frá því að fara rangt að í ákefðinni eftir að hjálpa einhverjum vesölum sjúklingi. Mér fanst stundum fljótræðis hreyfingum mínum væri haldið í skefjum með því að aftrandi hönd væri lögð ofan á höndina á mér. í önnur skifti fanst mér rödd hvísla í eyra mér: »Nei gerðu ekki það, gerðu þetta«. Og samstundis vissi eg, hvað rétt var að gera, og hvernig ætti að gera það. Það eru nokkurrar hliðar á spítalastarfi. sem gestir, er snöggvast koma inn og sjá aðeins sjúklingana í tárhrein- um og snotrum rúmum, vita ekki neitt um. Sumt af því,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.