Morgunn - 01.12.1935, Qupperneq 27
MORGUNN
153
stöðu sinnar, yrði öðru hvoru að dæma harða dóma, þá
var augljós skilningur hans á málunum. Og fáir eða eng-
inn maður mun hafa farið brottu frá rannsóknardómaran-
um með kala til hans.
Eg hefi spurt einn skoðanabróður Dahls, sem lengi
hefir starfað með honum, hvort hann búist við því, að
Dahl muni nú láta eitthvað til sín heyra. Hann svaraði:
»Eftir þeirri reynslu, sem eg hefi öðlast, er eg i eng-
um vafa um það. Eg hefi tekið svo mikinn þátt í starfinu,
að eg get ekki efast. Öðru máli er að gegna með þá, sem
fyrir utan standa.«
Merkur prestur í Danmörku kemst svo að orði um
Lúðvíg Dahl og dóttur hans.
»Sjálfur hefi eg getað rannsakað margt merkilegt af
þessu tagi, — á hann þar við dularfull fyrirbrigði, — og
fært sönnur á ‘veruleik þess. Hér skal þessa getið: Góð-
vinur minn, norski fógetinn Lúðvig Dahl í Friðriksstað á
dóttur, sem Ingeborg heitir. Hefir hún óvenjulega miðilshæfi-
leika. Hafa þau mægðin veitt mörgum mönnum huggun i
sorgum og þjáningum«.
Það er ekki lítilsvert, að það séu vitrir menn, sam-
viskusamir og lærðir, sem um þessi mál fjalla, og þess
vegna er getið álits þessara manna á Dahl fógeta.
Lúðvíg Dahl hefir ritað nokkurar bækur um sálar-
rannsóknir. Er hann fremstur sálarrannsóknarmanna á
Norðurlöndum. Bók sú, sem eftirfarandi frásagnir eru tekn-
ar úr, er siðasta bók hans.
Dóttir Dahls, lngeborg að nafni, var miðillinn, sem
hjálpaði framliðnum mönnum að ná sambandi við ættingja
og vini hér á jörðu.
Fógetinn hafði sérstaklega samband við tvo sonu sina,
sem látnir voru.
Seinasta bók Dahls, eins og getið hefir verið, heitir:
Dauði, hvar er broddur þinn?
Er henni skift í átta kafla. Fyrsti kaflinn er stutt yfir-
lit um sálarrannsóknir siðustu fimtíu ára. Annar kaflinn er