Morgunn - 01.12.1935, Side 31
MORGUNN
157
Vér gerðum þarna mikið gagn. Margt ungt fólk var með
oss á ferðalaginu. Og vorum vér kölluð andarnir. Smám
saman verðum vér vör við hvítleitt efni ljómandi. Það
þyrlast upp í kringum oss. Vér förum af stað og lyftumst
lengra og lengra. Loks komum vér þangað, sem sem fast
er undir fótum. Þetta var undraferð um himingeiminn.
Fegurðinni og yndisleikanum munum vér aldrei gleyma.
Vingjarnlegar verur rétta oss hendur. Þessar verur ætluðu
að búa oss undir förina og leiðbeina oss, áður en vér kom-
um á lágsvæðin og færum að starfa þar. Það mun hljóma
skringilega, þegar eg segi yður, að vér komum þarna inn
í háreistar hallir, fagrar verksmiðjur, rannsóknarstofur og
önnur vinnustæði. Samskonar byggingar og samskonar
störf á jörðunni eru daufir skuggar af því, sem hér gaf að
iíta. Jarðarbúar sækja að einhverju leyti framfarir sínar til
þessarar guðlegu fegurðar og þessara framkvæmda. Það
var sem vér fyndum andardrátt drottins í öllum þessum
undrum. Eitt með því tilkomumesta, sem vér sáum, var
i undrahöll einni, sem virtist vera nokkurskonar útvarps-
stöð. Þaðan er víðvarpað til jarðarbúa háleitum hugsjónum
og fræðslu í vísindum og listum. Taka þeir við. sem mót-
tækileika hafa. Þarna fengum vér líka að sjá, að yfir hverri
mannssál er lýsandi stjarna. Hver stjarna gefur til kynna
hvernig sálin er, hæfileiki hennar og þroski. Vér sáum
einstakar stjörnur lýsa dýrlega, og var það bending um
mikinn andlegan þroska. — Nú förum vér eftir skrautgörð-
um, undursamlega fögrum. Þar stendur hvert tré og hvert
blóm í fullkominni fegurð forms og litar. Þá komum vér í
almenna skóla, ýmsar kirkjur og nokkura háskóla. Þar
hlýddum vér á fyrirlestra. Eins og gefur að skilja, höfðum
vér þeirra ekki fyllilega not. Þarna gafst oss tækifæri til
að tala við vísindamenn i læknisfræðum. Fást þeir við ný-
ungar, sem síðar flytjast til jarðarbúa.
Ekki er unt að lýsa þeirri tign, fegurð og fjölbreytni,
sem við sáum á leið vorri. Óteljandi stjörnur blikuðu yfir
<oss og alla vega í kring, en hljómar himneskra söngva