Morgunn - 01.12.1935, Síða 77
M ORGUNN
203
um. Vér erum ekki í andstöðu við kirkjuna. Vér erum að
reyna að gera kirkjuna aftur að því, sem hún var uppruna-
lega. Vér höldum því fram, að margir þeirra, sem vér les-
um um í gamla og nýja testamentinu hafi ekki lifað eingöngu
við trú; þeir höfðu æfinlega samband við ósýnilegan heim.
Þeir stóðu í beinu sambandi við hinn heiminn. Þetta hélt
áfram þangað til í byrjun þriðju aldar, þegar kirkjukerfi,
sem vér köllum kristni, fór að taka fyrir kverkarnar á
kristninni. Þegar alls er gætt, er hver sannarlegur prestur í ein-
um skilningi miðill og vonar að Andinn leggi honum orð
í munn. Sira Elliott hélt því fram við blaðamanninn að
»stjórnendur« (controls) hafi, í þeim skilningi sem spíritistar
nota það orðtæki, staðfesting bibliunnar — ef ritningin sé
að eins lesin rétt.
Sharp erkidjákni, forseti þessa nýja prestafélags, lét uppi
skoðanir sínar við mann frá öðru Lundúnadagblaðinu og
meðal annars fórust honum orð á þessa leið: »Biskupinn
hefir verið með þessar árásir áður, en vandæðin með
prestana eru þau, að þeir hafa stungið höfðunum niður í
sandinn. Kirkjan verður að vakna og fara að rannsaka
spíritismann, því að þekkingin á málefni voru breiðist út
meira«.
Þá hefir þriðja dagblaðið átt tal við Dr. Percy Dearmer,
prest við Westminster kirkjuna, sem er mikið þektur mað-
ur bæði sem rithöfundur og ræðumaður, og hefir meðal
annars verið fulltrúi fyrir hið enska K. F. U. M. Hann sagði
meðal annars, að ummæli biskupsins væru »ef til vill
nokkuð grunnfærnisleg«, alt málið væri viðtækara og djúp-
settara en ummæli biskupsins virtust benda á. »Þau taka
ekki til greina«, sagði hann ennfremur, »það afskaplega
magn vísindalegra rannsókna, sem fram hafa farið nú um
mörg ár á þessum sálrænu fyrirbrigðum, er menn sem
stendur hafa svo lítinn skilning á. Fyrir tuttugu árum var
þess konar gagnrýni auðveld og algeng; nú er hún ónóg
og naumast málinu viðkomandi; ekki er heldur neitt til,
sem líklegt er til þess að aftra trúhneigðum mönnum frá