Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 81
BÚFRÆÐINGURINN
79
enn erum ung: Við sem höfum séð og þykjumst enn sjá inn í
fyrirheitna landið, vonum að þið komizt þangað einhvern /
tíma. Þó voru ekki gefin nein fyrirheit um það, að sú ferð yrði
fyrirhafnarlaus, enda mundi það öllum fyrir beztu.
Jón Jónsson bóndi á Hofi þakkaði höfðinglegar móttökur,
er við hefðum hér notið. Fór hann lofsamlégum orðum um
samvinnu og félagsþróun, er mjög hefði vaxið í Árnessýslu á
síðari árum, lýsti hann ánægju sinni yfir velgengni kaupfélags-
ins og kvað svo að orði, að hingað gætu kaupfélög víða að sótt
fyrirmynd sína.
Að lokinni veizlu voru Árnesingar kvaddir og ferðinni fram-
haldið til Reykjavíkur. Hér var Ölfusið á aðra hönd með
gnægð af grösugum engjum. Hlýtt er fyrir Hveragerði að una
við jarðhitann í skjóli Ingólfsfjalls. Vel má vera að andi Ing-
ólfs, Iiins guðhrædda, vitra og hamingjusama manns, sveimi
enn yfir fjallinu. Og gott mun honum þykja að líta vfir farinn
veg, er hann lagði um góð og frjósöm héruð, þó Iiann vildi
hvergi búa nema þar, sem hinar guðumvígðu öndvegissúlur
forfeðra hans bárust að landi.
Nú var Suðurland að kveðja. Við vorum komin á Kamba-
brún. Hugurinn flaug yfir farna slóð, allt austur að Kálfafelli,
þangað sem við höfðum lengst komizt. Enn var litið yfir Suður-
land. Við þökkuðum skemmtunina, fræðsluna og gestrisnina,
sem við höfðum þar notið. Um kvöldið komum við til Reykja-
víkur. Þar dreifðist hópurinn og leituðu menn gistingar hjá
frændum sínum og vinum.
Daginn eftir, að afliðnu hádegi áttum við að mæta hjá Bún-
aðarfélagi íslands, og fara þaðan að sjá Landbúnaðarsýning-
una. Landbúnaðarsýningin var það yfirgripsmikil, að ekki
verður henni gerð nein skil í stuttu máli. En þó má geta þess
helzta. Sýningin mun liafa verið svo vel undirbúin og skipu-
lögð, sem kostur var á. Henni var ætlað að sýna þróun íslenzks
landbúnaðar, og veita Jieim fræðslu, er búskap stunda. Hún
átti og að auka skilning kaupstaðarbúa á búskap og gildi hans
fyrir þjóðarheill.
Á sýningunni var margt að sjá, bæði að fornu og nýju, er lot-
ið hefur að landbúnaði. Þar var eldhús í fornum stíl með járn-