Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 117
BÚFRÆÐINGURINN
115
bygginga mjög rúmgóða griparétt. Yfirgerzla fjárhúsanna er
vafalaust sú rammgerðasta, sem þekkist í landinu og hefur
þeim auðsjáanlega verið vel við haldið. Ofan á sterkum reka-
viðarröftum, sem hvíla á öflugum stoðum og langböndum er
sköruð grjóthella og tyrft þar yfir.
Næst skoðum við tveggja ára gamla steinsteypta byggingu.
I öðrum enda hennar er smiðja með alls konar verkfærum og
sumum rafknúnum, eins og áður er getið. í hinum endanum
er tveggja klefa frystihús með rafknúnum frystivélum. í klef-
unum voru geymd margskonar matvæli, kjöt allskonar, fisk-
ur, slátur og ýmislegt fleira og var búsældarlegt þar um að líta.
Til samanburðar frá eldri tíma datt mér í hug lýsingin á búr-
inu hans Bárðar á Búrfelli. Þarna hefði honum þótt gott að
dvelja langdvölum, en vel hefði hann mátt dúða sig.
Af gamla bænum á Þorvaldareyri er eldhúsið eitt eftir, og er
það notað fyrir reykhús, en í bæjartóftum eru nú ræktaðar
trjáplöntur.
í engjagirðingunni eru fjárhús fyrir 120 fjár og hesthús fyr-
ir 20 hross. Bústofnin á Þorvaldareyri er nú 14 mjólkandi kýr,
•nokkur geldneyti, um 200 ær og 30 hross. Túnið gefur venju-
lega af sér 800—1000 hestburði og engið svipað. Allt land er
véltækt og unnið eingöngu með vélum. Venjulega eru notaðir
10 dráttarhestar, 3 sláttuvélar, 1 snúningsvél, 2 rakstrarvélar,
heyýtur og vagnar.*) Engjar eru slegnar með heyskúffum og
sparar það stórlega rakstur. Fjórði hluti töðunnar og fimmti
hluti úheysins er verkað í votheysgryfjum.
Túnið er afgirt. Þjóðvegurinn liggur í gegn um það og er
girt báðum megin vegarins. Hornstólpar girðinga eru stein-
steyptir, einnig hliðstólpar og í þeim eru vandaðar járngrindur.
Engjar eru einnig girtar og meiri hluti haganna.
Þorvaldseyrarfeðgar hafa fundið upp og notað lengi sérstaka
heyverkunaraðferð, sem er í því fólgin, að heyið er tekið ná-
lega hálfþurrt og sett í tvísettar lanir og breytt yfir. Þannig
þornar heyið í flestum veðr.um. Eftir eina til tvær vikur er
heyið svo keyrt í hlöðu, en stillt svo til, að hitinn sé ekki
*) Nú er komin dráttarvél á Þorvaldseyri.
8*