Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 88
86
BÚFRÆÐINGURINN
hafna og samræma mismunandi staðháttum, óskum og kröfum
eftir beztu getu.
Annað mál er það, að búskaparhættir éru stöðugum breyt-
ingum undirorpnir. Breytingarnar hafa áhrif á skipulag hús-
anna. Þessar breytingar miða að því að gera hlutina fullkomn-
ari. Við getum því aðeins fullyrt það sem við vitum í dag.
Þar sem bygging fjósa er vandasamari, en bygging flestra eða
allra annarra útihúsa, mun ég hér, í mjög stuttu máli, gera
grein fyrir nokkrum höfuðatriðum, er þau varða.
Fjós eru að formi til aðallega með tvennu móti: einstæð eða
tvístæð. Hæfileg breidd fyrir einstætt fjós er um 5.00 m. innan-
mál, en tvístætt fjós um 9.50 m. Sjálfsagt er að byggja hvor-
tveggju fjósin með risþaki og skammbitum. Er þá klætt neðan
á sperrusúð og skammbita, en lofthæð undir skammbita um
2.50 m., en hæð útveggja 2.00 m. Skammbitar koma nálægt
miðjum sperrum. Sperrur er bezt að hafa 2x6 þumlunga að
sverleika, og 61 sentimetra frá miðri sperru á miðja þá næstu.
Skammbitar eru úr sama efni og af sama þéttleika. Ef fjós eru
þannig viðuð eru stoðir óþarfar með öllu, þótt um tvístæðufjós
sé að ræða, en stoðir eru jafnan til óþrifa og leiðinda. Innan á
sett grind úr 2x4 þml. stöfum, af sama þéttleika og sperrur,
en stafirnir látnir standa tvo jrumlunga frá vegg. Milli sperra,
skammbita og stafa er síðan þéttstoppað með Jjurru og góðu
reiðingstorfi, lagt þannig að þykkt jiess sé hvergi minni en sex
þumlungar, en á veggjum koma torfurnar einnig á bak við
stafi milli þeirra og steinsins. Rétt er að hafa pappa þar yzt við
múr. Torfinu er lialdið föstu með þverböndum milli stafa, bita
og sperra, en síðan klætt yfir með svokölluðum „utanhúss as-
bestplötum“, sléttum. Asbest er hið ágætasta efni til að klæða
innan fjós með. Það er hóflegt að dýrleika, sein næst loftþétt,
tekur ágætlega kalkþvotti og brennur hvorki né funar. Plöt-
urnar koma í stærðum 122x244 sm., en bil það, sem haft er á
milli timbureiningar, og áður getur, er miðað við þessa plötu-
stærð. Þunnt asbest er fremur brothætt. Er því nauðsynlegt að
plöturnar, sem settar eru á veggina, séu hálfur jiumlungur á
þykkt. Hins vegar er lieppilegra að nota helmingi Joynnra asbest
neðan á loft, því að það er léttara og ódýrara og nægilega sterkt