Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 147
BÚFRÆÐINGURINN
145
galla, sem venjulegar steinhlöður hafa. Þar sem ég hef átt þess
kost, að kynnast þessum hlöðum nokkuð, vildi ég fara nokkr-
um orðum um, hvað ég tel þeim helzt til gildis.
Það virðist vera einn höfuðkostur þeirra, að hey í þeim er
aldrei fúlt ofan, eða við veggi, heldur virðist það allt vera jafn
gott og er það var látið inn. Þar sem skálar þessir eru með boga-
dregnu þaki, rennur allur suddi, sem kann að setjast innan á
járnið, niður járnið og ofan með hliðunum, í stað þess að falla
ofan í heyið. Töluverður súgur er í þessum hlöðum, og því raka-
myndun lítil og þar af leiðandi geymist hey vel í þeim og verð-
ur lystugt og gott fóður.
Auk þessa eru þessir skálar auðveldir í uppsetningu og rúma
mikið, einkum þegar steyptir eru 2—4 álna veggir undir þá.
Munu þetta því verða fremur ódýrar hlöður, ef hægt er að fá
góða skála með sanngjörnu verði.
Margir bændur hafa fengið þessa skála og nota þá fyrir verk-
færageymslur, og er það vitanlega gott, en þó tel ég þá enn
heppilegri sem heyhlöður, og hef ég komizt á þá skoðun, eftir
að hafa borið saman hey í þeim og hlöðum af annarri gerð.
Raddir hafa heyrzt um það, að þessir herskálar væru ljótir og
til vansæmdar að hafa dreift þeim út um sveitir landsins og að
þeir þyrftu að hverfa sem fyrst. Við slíku á maður ekki að leggja
eyru, en hafa það hugfast, að ef þetta reynast hentugar bygg-
ingar, eiga menn að dæma þær eftir því.
Ég tel þetta mál þess virði, að athuga þyrfti möguleika á því,
hvort ekki væri hægt að fá innflutt efni í þessa skála, því að þá
gæti margur bóndinn komið sér upp góðum og ódýrum hlöð-
um og verkfærageymslum.
Helgi Pétursson.
Verðlaunaritgerðir.
Á Búnaðarþingi 1943 var sú ályktun samþykkt, að Búnaðar-
félag íslands skyldi efna til samkeppni um ritgerðir, er félagið
verðlaunaði. í ritgerðum þessum skyldu keppendur birta til-
lögur, og láta þeim fylgja greinargerðir, utn framtíðarskipu-
lag landbúnaðar.
10