Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 40
38
BÚFRÆÐINGURINN
en aftur á móti eru þeir færri, sem veita eins nákvæmri athygli
fyrstu einkennum hans, en þau eru að kýrin stendur, starandi
sljóvum augum og eftirtektarlausum, hættir að éta og jórtra og
sýnir einkenni vöðvaóstyrks.
Þegar doðinn hefur náð því stigi, að kýrin liggur máttlaus og
meðvitundarsljó, er ástæða til að minna á, að stórhættulegt er
að hella ofan í hana vökva, t. d. mjólk, hafraseyði o. fl., þar eð
kyngivöðvarnir eru máttlausir og það kann að hafa í för með
sér að kúnni svelgist á, vökvinn lendir þá oft niður í lungun og
veldur lungnabólgu finnöndunarlungnabólga). Þessa lungna-
bólgu er þó ekki alltaf hægt að varast, þar eð kýrin getur ropað
upp gorblöndu eða svelgst á munnvatni.
Við doða lamast jafnt sléttir sem þverröndóttir vöðvaþræð-
ir. I meltingarfærunum eru sléttir vöðvar og við lömun þeirra
lamast öll meltingarfærin. Heilbrigð kýr hefur, með jöfnu
millibili, sterkan samdrátt vambveggjarins og öldukenndan
samdrátt þarma. Þannig eltist fóðrið og þrýstist aftur eftir melt-
ingarfærunum.
Við doðalömun stanza þessar hreifingar og það leiðir með sér
að lofttegundir þær, sem myndast í vömbinni við gerjun hey-
fóðursins og venjulegast ropast upp við jórtrið, safnast í vömb-
inni, þá sjást ný einkenni, en það er „uppþemba" og má sjá það
vinstra megin aftan rifja. Stundum getur þemban orðið svo
áköf að vömbin þrýsti svo á þindina, að það veldur andþrengsl-
um eða jafnvel köfnun. Við lömun þarmanna þornar fóðrið
upp t. d. í lakanum og endagörninni og getur það valdið þrá-
látum stíflum.
Við doða án þeinbu er öndun hægari en ella, eða um 8—10
inn- og útandanir á mínútu (eðlileg öndun 16—32 á mín.).
Æðaslögin verða aftur á móti örari og ógreinilegri en venju-
lega, stundum allt að 80—100 á mín.
Bæði þessi síðasttöldu einkenni stafa frá lömun á öndunar-
tauginni (N. Vagus).
Líkamshitinn er oft neðan við eðlishita (sem er 38.5° C.)
stundum allt niður í 35—36° C. Húð og horn eru köld og gran-
ir þurrar.
Frá þessari mynd, sem er hin venjulega doðamynd sjást svo