Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 143
BÚFRÆÐINGURINN
141
myndast við öndun gripanna leiðist ekki nema að nokkru
leyti út.
Hér á landi er algengast að liafa marga litla strompa á pen-
ingshúsum. Það er rangt, enda er loftræsting víða ófullkomin.
Einn stór strompur myndi gera miklu meira gagn.
Einfalda veggi þarf að einangra. Það hefur verið venja, að
setja einangrunina innan á veggina. En fullkomnari einangrun
er hægt að fá, ef einangrunarlagið er sett utan á þá, því að þá
er hægt að einangra allan veggpötinn — sem útiloftið leikur
um.
Ef einangrað er innanfiá, er ekki hægt að einangra gólf og
loft frá veggjum, og verða þar því oftast óeinangraðir partar,
sem mikill hiti tapast um og oft valda raka. Sama er að segja
um steypta milliveggi, sem liggja í einfalda útveggi.
Líkur eru fyrir því að hiti verði jafnari í þeim húsum, sem
einangruð eru að utan, því að steinveggirnir munu verka eins
og hitageymir. Þegar heitt er draga þeir til sín anikinn hita,
en skila honum aftur þegar kólnar.
Ef einangrun er sett utan á steinveggi, verður að gera múr-
húð þá sem sett er á einangrunarlagið vatnsþétta, en það mun
vera erfitt nema með góðri málningu.
K. K.
Aðferð til að vita hvort rétt hefur verið margfaldað
eða lagt saman.
Við lifum á tímum viðskipta, skriffinnsku og útreikninga.
Allir þurfa að reikna meira og minna. Sumir hafa reikni-
vélar. Þeir eiga venjulega auðvelt með að vita hvort rétt sé
reiknað. En þeir eru miklu fleiri, sem verða að reikna án véla,
og eru því oft lengi að fullvsisa sig um að útkoman sé rétt.
Eg iþekki auðvelda aðferð til þess að reyna margföldun, og
vegna þess, að ég hef rekizt á svo fáa, sem kunna þessa aðferð,
vil ég lýsa henni ef einhverjir vilja læra hana sér til gagns.
Dæmi: 49 X23=1127.
Dæmið er reynt þannig: Þversumma er tekin af margföld-
unarstofni. Þversumman af 49 er 13, þversumman af 13 4. Þessi