Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2011, Page 92

Andvari - 01.01.2011, Page 92
90 ÞORVALDUR GYLFASON ANDVARI 3 eða 4 í safnskrá. Á henni er þessi áritun: „F. BRYNJULF BERGSLIEN 1872“. Marmarinn er hvítur, næstum eins og nýfallin mjöll. Styttan virðist yfirleitt ekki hafa vakið sérstaka athygli nema fyrir það, að henni var snúið til veggjar í grjótkastinu á Alþingishúsið 1949. Morgunblaðið taldi kommúnista hafa snúið styttunni við með kámugum höndum, enda nudduðu þeir sér því fastar utan í Jón Sigurðsson sem ódæðisverkin, sem þeir verðu og ynnu, væru voðalegri. Þjóðviljinn taldi Jón hins vegar hafa snúið sér til veggjar til að þurfa ekki að verða vitni að samþykkt Alþingis á inngöngu íslands í Atlantshafsbandalagið. Gunnlaugur Þórðarson dr. jur., fyrrum forsetaritari, skýrði frá því næstum 30 árum síðar, að hann hefði snúið styttunni við til að hlífa henni við grjótkastinu.26 Frummyndina, það er eintak listamannsins eftir því sem næst verður komizt, keypti höfundur þessarar greinar í maí 1995 af listmunasalanum Erwin Anton Svendsen, Bredgade 4, Kaupmannahöfn. Myndina hafði Svendsen að eigin sögn keypt úr dánarbúi í Danmörku, og hafði hún síðan staðið heima hjá honum í tvö ár eða þar um bil, en þó verið höfð til sýnis við og við í búð hans í Store Strandstræde. Aftan á styttunni er þessi áritun: „11. novbr. 1871. B. Bergslien“. Fimm dögum síðar var Jóni Sigurðssyni haldin veizlan, þar sem honum var afhent gifsmynd Bergsliens. Helgi Gíslason myndhöggvari þekkir styttuna og telur einnig, eins og Svendsen, að hún sé trúlega frummyndin eða standi mjög nálægt frummyndinni. Heldur óveglegur bráðabirgðastallur undir henni gæti bent til þess, að þessu eintaki hafi Bergslien haldið eftir handa sjálfum sér og skilið eftir í Kaupmannahöfn, þegar hann fór aftur heim til Noregs. Stallarnir undir öllum hinum myndunum, sem frá er sagt að neðan, eru viðhafnarmeiri. Storknað fljótandi gifs í hvirfli sýnir, að myndin er afsteypa af leirmynd. Hvernig eru margar gifsmyndir gerðar eftir einni frummynd? Fyrst mótar myndhöggvarinn mynd í leir. Síðan er tekið gifsmót af leirnum, og eyðileggst leirmyndin yfirleitt, þegar mótið er skilið frá henni, enda er leirinn viðkvæmt efni og endist illa. Síðan er blautt eða fljótandi gifs sett í mótið og storknar, og þannig verður fyrsta gifsmyndin til, frummyndin. Yfirleitt þarf að brjóta mótið utan af myndinni. Síðan er hún notuð til að smíða nýtt mót og steypa nýja mynd, sem verður því jafnan sljórri en frummyndin. Þannig er hægt að gera margar myndir. Þá þarf að handfjalla hverja gifsmynd, til dæmis til að jafna för eftir samskeyti í móti og aðrar misfellur, og verða því engar tvær afsteypur alveg eins. Myndir, sem mót eru steypt eftir, geta einnig sljóvgazt eða spillzt við það. Þessi leikmannslýsing gæti átt við um gifsmyndirnar, sem sagt verður frá hér á eftir, og skýrt þann mun, sem á þeim er. Vitað er um nokkrar gifsafsteypur, sem voru gerðar eftir brjóstmynd Bergsliens í Kaupmannahöfn. Verður hér sagt frá þeim, sem vitað er um í opinberri eða hálfopinberri eigu. Ein afsteypan fylgdi Hafnardeild
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.