Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1945, Síða 106
84
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
björn Johnson, lögfræðingur; Gunn-
ar B. Björnsson ritstjóri, og dr. Árni
Helgason, ræðismaður; dr. Vilhjálm-
ur Stefánsson, landkönnuður, og pró-
fessorarnir dr. Stefán Einarsson, og
Halldór Hermannsson. fsland gat
ekki boðið öllum sem því unna í
Ameríku að koma á fund forseta síns
í New York til að taka í hönd hans
og kynnast honum. Þessvegna var
þessum gestum boðið úr báðum lönd-
unum, að við mættum þrýsta hönd
hans, einnig vegna hinna sem ekki
gátu komið. Og þegar við kvöddum
forsetann á burtfarardegi hans frá
New York, og óskuðum honum og
heimaþjóðinni allrar hamingju og
blessunar í framtíðinni, þá gerðum
við það í nafni allra íslendinga sem
dvelja hér á vesturvegum. Hið síð-
asta orð forsetans til okkar var: Berið
þið kveðjur frá íslandi til allra sona
þess og dætra sem þið náið til! Við
snerum heim á leið, og hugsuðum víst
allir um hið sama, íslensku þjóðina í
nútíð og framtíð —
“Drjúpi’ hana blessun Drottins á,
um daga heimsins alla.”
Enskar bækur um íslensk máleíni
Icelandic: Grammar, Texts, Glossary,
eftir prófessor Stefán Einarsson. Þessi
stóra og ágæta kenslubók í íslensku kom
út á árinu sem leið, og er fullar 500 bls.
að stærð. Hún er fyrst og fremst fyrir
enskumælandi íslensku-nemendur, en
ætti jafnframt að vera happafengur fyrir
hina yngri kynslóð Vestur-lslendinga.
Fyrst er málfræðin með nákvæmum
framburðar táknum. Þá koma leskaflar
af ýmsu tæi með skýringum og siðast
orðasafn, sem tekur vist yfir flest þau
orð, sem í lesköflunum standa. Ritun
þessarar bókar er hið mesta þrekvirki, og
frágangur allur er útgefendunum til hins
mesta sóma; má meðal þess geta, að hún
er skreytt allmörgum myndum, sem ótítt
mun vera um málfræðis kenslubækur.
★
Iceland and the Icelanders, eftir Dr.
Helga P. Briem, aðalræðismann Islands
í New York, með litmyndum eftir Vigfús
Sigurgeirsson, ljósmyndara. — Þetta er
langsamlega sú fallegasta og ánægju-
legasta landkynningarbók, sem komið
hefir, um ísland. Myndirnar eru hver
annari fallegri og girnilegri, og lesmálið
gefur skemtilegri og samanþjappaðri
upplýsingar um land og þjóð, en hægt
væri að hugsa sér að kæmist fyrir á jafn
fáum blaðsíðum. Er leitt til þess að vita.
að upplagið skyldi alt hverfa í þá átt,
sem minst var þörfin á. En vonandi
rýmkar svo til um pappírsleyfi, að heeg1
verði að bæta úr þvi með öðru stserra
upplagi.
★
Iceland's Thousand Years. — Þetta erú
fyrirlestrar þeir, er fluttir voru síðastliðið
ár af nokkrum merkum félagsmönnum
og konum Þjóðræknisfélagsins og sarU'
bandsfélags þess, The Icelandic Canad-
ian Club, og gefnir út á kostnað og að
tilhlutun beggja félaganna. Eru þeír
vitanlega ætlaðir þeim lesendum, seú1
kynnast vilja Islandi, sögu þess og bók-
mentum, en ekki lesa eða skilja íslensku-
Fyrirlestrarnir eru skemtilegir aflestrar
og mjög í anda hinna styttri nútíðar
fræðslu rita, og víst áreiðanlegir eins
langt og þeir ná. Þetta er fremur snýfú'
legt kver og skreytt allmörgum myud'
um. Prentvillur eru þar nokkrar, og uaá
víst telja undir þær, að höfundur Mela'
blóma og Jökulrósa er nefndur MagnuS
Hjaltason, en hét réttu nafni Guðmund'
ur, enda er hann svo nefndur á öðruiu
stað í sama fyrirlestri. Þessi bók þyrfti u
vera prentuð í stærra upplagi svo hú11
fengi meiri útbreiðslu.