Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1945, Qupperneq 148
126
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
meðal déilda þeim til fróðleiks og upp-
örvunar.
11. Að gjörðabók þessa þings sé
prentuð í sérstöku riti, eins fljótt og því
verður við komið, og því riti síðan útbýtt
á meðal deilda og annara áhugamanna
í þjóðræknismálum vorum.
12. Að forseta sé falið að þakka Lofti
Guðmundssyni Ijósmyndara lánið á
hreyfimynd þeirri frá Lýðveldishátiðinni
á íslandi, sem sýnd var á þessu þingi, og
einnig að grenslast um möguleikana á
því að fá hana til sýninga út um land.
Valdimar J. Eylands
Marja Björnsson
G. Fjeldsted
O. Pétursson
Fjármála þingnefnd
J. Húnfjörð og A. E. Johnson báru nú
fram tillögu um að forseti skipi þriggja
manna þingnefnd. Samþykt.
Forseti tilnefndi þá:
Á. P. Jóhannsson
Soffonías Thorkelsson
J. J. Bíldfell.
Skýrsla fjármálanefndar
1. Nefndin hefir yfirfarið skýrslur
embættismanna og fundið þær rétt færð-
ar og í alla staði ábyggilegar og leggur
til að þær séu samþyktar.
2. I sambandi við rithöfundasjóð
leyfir nefndin sér að benda á, að í þeim
sjóði er nú aðeins $6.20.
Eins og þingheimi er kunnugt, þá var
þessi sjóður stofnaður með frjálsum
samskotum og honum hefir verið haldið
við ár frá ári á þann hátt.
Þar sem á yfirstandandi tíð, er sérstaks
styrktar þörf úr þessum sjóði, leyfir
nefndin sér að beina þeirri ósk til allra
deilda Þjóðræknisfélagsins að þær taki
þörf þá til athugunar og fyrirgreiðslu
eins fljótt og drengilega og föng eru á
með fjársöfnun, og sendi til féhirðis fé-
lagsins.
Á. P. Jóhannsson
Soffonías Thorkelsson
J. J. Bíldfell.
Tíunda mál á dagskrá, fræðslumál, la
nú fyrir, en sökum þess að milliþinga;
nefnd í málinu var ekki á þingi, var þV'
frestað um hríð. — Þá var tekið fyrir til
umræðu bókasafnsmálið, er aðallega
snertir deildina “Frón”.
J. Ásgeirsson bar fram tillögu er A. E-
Johnson studdi að forseti skipi fimta
manna nefnd, og var það samþykt.
Forseti tilnefndi:
Séra Philip M. Pétursson
Guðmann Levy
Hjálmar Gíslason
Davíð Björnsson
Jón Ásgeirsson
Álit bókasafnsnefndar
Eftir nokkrar athuganir og umrseð11'
í sambandi við starfrækslu og heill bóka'
safns deildarinnar Frón, leggjum vðl
undirritaðir til:
1. Að gert sé við bókaskápa safnsin5
svo fljótt sem unt er.
2. Að gangskör sé gerð að frani'
kvæmd annarar greinar í bókasafm
nefndaráliti síðast liðins þings, um a
visir að ensku bókasafni um íslensk
efni, sé komið á fót sem fyrst, er verð1
hluti af safninu.
3. Að Þjóðræknisfélagið leggi bóka
safninu til húsnæði endurgjaldslaust’
en að sá styrkur falli niður sem Þíóð
ræknisfélagið hefir veitt að undanförhu’
sem nam $100 á ári.
—Winnipeg, 28. febrúar 1945.
P. M. Pétursson
Guðmann Levy
John Asgeirson
Hjálmar Gíslason
Davíð Björnsson
Formaður kjörbréfanefndar J- J-
fell, lagði nú fram viðbót við skýrS^
sína, tjáði hann frá því að kominn v®V
til þingsins Pétur N. Johnson frá det j
inni “Fjallkonan” i Wynyard, ,a g
hann umboð yfir 90 atkvæðum. Forma^
ur nefndarinnar gerði einnig frekarl