Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Side 16
14
5. MYND.
fjöldi
veikir meðal gamalmenna en meðal miðaldra.
Vegna þess hve fáir eru í aldursflokknum 85-94
ára bæði íbúar og sjúklingar, hafa frávik, sem hér
sjást litla þýðingu (sjá 5. mynd).
Tími sá, sem sjúklingamir hafa verið veikir, er
mjög mislangur, frá nokkrum dögum upp í marga
áratugi. Þegar hér er talað um hve lengi sjúklingar
hafa verið veikir, er átt við hve lengi þeir hafa
verið undir læknishendi. Er það þó langt frá því að
vera eitt og hið sama í öllum tilfellum með sjúk-
dóma þá, sem hér ræðir um, sem byrja oft smátt og
smátt og oft eru mjög langvinnir, og því ómögulegt
að segja upp á dag, hvenær sjúklingur hefur veikst.
Hins vegar er það ákveðinn dag sem sjúklingur
vitjar læknis fyrst og því hægt að miða við þann
tíma.
Á 6. mynd sést fyrir hve löngu sjúkl. vitjuðu
núverandi læknis fyrst. Gefur hún því nokkra hug-
mynd um hve lengi sjúklingamir hafa verið veikir.
Þegar þessi mynd er athuguð, þarf að taka tillit til
þess, að tímanum sem liðinn er síðan sjúklingamir
vitjuðu læknis er ekki skipt jafnt. Fyrst er talið í
mánuðum upp í 1/2 ár, síðan 1/2-1 ár og úr því í
heilum árum upp í 5 ár. Það er því flatarmál hvers
hyrnings, sem táknar sjúklingafjöldann, en ekki
einungis hæðin á þeim. í reitinn sem opinn er
koma þeir, sem veikir hafa verið í meira en 5 ár.
Mundi hann að réttu lagi eiga að ná yfir 46 ár,
þ.e.a.s. alveg frá því gamli spítalinn á Kleppi var
fjöldi 6. MYND.