Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Blaðsíða 112
110
miklum árangri er hægt að ná. Það er erfitt að
marka stefnu í heilsugæslu, þegar þekkingin á því
hvað stuðlar að góðri heilsu og hvað veldur sjúk-
dómum er ónóg. En slíkt er óviðunandi ástand,
ekki aðeins fyrir læknisfræðina, heldur fyrir alla
þjóðina, og ekkert má láta ógert til að bæta úr
þessu til að draga úr þjáningum fólks, Faralds-
fræðilegar rannsóknir geta hjálpað til að bæta úr
þessu ástandi.
FARALDSFRÆÐI
Faraldsfræði er undirstaða heilsuvemdar og
skipulagningar heilbrigðisþjónustu (3). Flún er
skilgreind sem fræðin um dreifingu sjúkdóma og
ákvarðandi atriði um tíðni þeirra (4). Frá rannsókn-
arsjónarmiði er tilgangur faraldsfræðilegra kannana
að öðlast þekkingu á orsök sjúkdóma til þess að
geta komið í veg fyrir þá. Faraldsfræðilegar rann-
sóknir geta og hafa leitt til uppgötvunar á heilsu-
verndaraðgerðum í geðlæknisfræði. Hið sígilda
dæmi eru rannsóknir Goldbergers (5) á geðtrufl-
unum við pellagra. Faraldsfræðilegar rannsóknir
eru gagnlegar við að setja fram og prófa tilgátur um
orsakir sjúkdóma og við prófun á gildi vamaráætl-
ana. Ennfremur geta þær auðveldað flokkun sjúk-
dóma. Fylgni faraldsfræðilegra sérkenna getur
bent til líkra orsaka, jafnvel sjúkdóma, sem eru
aðgreindir í daglegu starfi.
Þegar leitað er líklegra orsaka sjúkdóma, verður
alltaf að hafa í huga muninn á fylgni og orsakasam-
hengi. Þetta er oft augljóst, eins og í dæminu sem
rætt verður seinna í þessari grein, um fylgni milli
lélegs námsárangurs í barnaskóla og áfengis-
vandamála síðar meir. En vitneskjan um fylgni
getur leitt til þekkingar á orsökum og getur komið
að notum til þess að finna hópa, sem líklegir eru til
að þurfa sérstaklega á vamaraðgerðum að halda.
Með faraldsfræðilegum rannsóknum em greind-
ir hópar, tímabil og staðir þar sem dreifing á sjúk-
dómum er með sérstökum hætti. Niðurstöður
slíkra rannsókna eru síðan lagðar til grundvallar
frekari sérgreindra rannsókna, sem hafa þýðingu
til að finna orsök sjúkdóms eða finna áhættu-
hópa. Það er mikilvægt að vita hverjum er mest
hætta búin og beita virkum aðgerðum þeim til
varnar, til þess að minnka líkur á því, að þeir verði
geðsjúkdómum að bráð. Mikilli þekkingu hefur
verið safnað um dreifingu geðsjúkdóma í samfé-
laginu og tilgátur um tengsl ýmissa erfðafræði-
legra/líffræðilegra og geðrænna/félagslegra atriða
við geðsjúkdóma hafa verið settar fram. Yfirlit yfir
þær rannsóknir, sem þekking þessi byggist á, hafa
birstvíða (6,7,8,9,10,11,12)oghefurveriðstuðst
við þau við samningu þessa greinarstúfs. Sem dæmi
um hvernig nota má faraldsfræðilegar rannsóknir
við að finna áhættuhópa, verður fjallað stuttlega
um þrjú rannsóknarverkefni, sem unnið hefur ver-
ið að á Kleppsspítala.
ÁHÆTTUHÓPAR
Eitt þessara verkefna miðaði meðal annars að
því að rannsaka sambandið milli tíðra og langra
fjarvista togarasjómanna frá heimilum sínum og
geðheilsu þeirra og fjölskyldna þeirra (13). Sjó-
mennirnir og fjölskyldur þeirra eru borin saman
við samanburðarhóp verksmiðjustarfsmanna.
Samanburðarhópurinn er svipaður sjómönnunum
hvað varðar aldur, menntun og starfsábyrgð.
Komið hefur í ljós, að veikindi í fjölskyldum sjó-
manna eru meiri en í fjölskyldum samanburðar-
hópsins. Einkum er fjöldi barna með grunsamleg
geðræn einkenni töluvert meiri. Viðurkenning á
mikilvægi föðurins í uppeldi barnanna fer vaxandi
(14) og niðurstöður þessara rannsókna styðja það,
jafnvel þótt ekki ætti að útiloka aðrar skýringar á
þessum tíðari veikindum sjómannabarnanna.
Breyting á vinnuaðstöðu föðurins, sem draga
mundi úr tíðum og löngum fjarvistum hans frá
fjölskyldunni, gæti orðið til bóta og dregið úr
líkamlegum og geðrænum einkennum barnanna.
Hugsanlega gæti það haft geðvemdaráhrif og dregið
úr hættunni á því að þessi böm fengju geðsjúkdóma
síðar á ævinni. Slíkar breytingar á vinnufyrirkomu-
lagi krefjast mikilsverðra stjórnmálalegra eða
stjórnunarlegra ákvarðana eða samninga milli
aðila vinnumarkaðarins.
Annað verkefni fjallaði um áfengisneyslu full-
orðinna. Þar kom í Ijós, að meirihluti karla, sem
voru misnotendur eða stómeytendur áfengis byrj-
aði að drekka yngri en þeir, sem ekki áttu við þessi
vandamál að stríða. Misnotendur eru skilgreindir
þeir, sem tilgreindu þrjú eða fleiri einkenni, sem
báru vott um áfengismisnotkun eða fíkn (15).
TAFLA I
Samanburður á aldrí við upphaf áfengisneyslu karla, sem mis-
nota áfengi, og annarra áfengisneytenda.
Aldur Misnotendur (Fj. = 155) Hlutfall Aðrir áfengis- neytendur (Fj. = 908) Hlutfall
- 14 ár 20 10
15- 17 ár 50 50
18-20 ár 25 29
21 + ár 5 12
Alls 100 101
X2= 19,99 DF = 3 P<0,001