Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Blaðsíða 14
12
landi. Samanburður á Reykvíkingum og öðrum
eftir greiningum sést á 2. mynd. Við athugun á
þessari mynd kemur í ljós, að Reykvíkingar eru
fjölmennari í flestum sjúkdómunum. Mest áber-
andi er þessi munur meðal neurosanna, 311 Reyk-
víkingar á móti 125 utan af landi. Til þess að
myndin yrði ekki alltof stór er súlan, sem sýnir
neuroses meðal Reykvíkinga, höfð helmingi breið-
ari en hinar (ætti að vera helmingi hærri en hún er,
ef breiddin væri eins og á hinum).
Einnig er munurinn mjög áberandi í psychoses
senii og alcoholismus. Fljótt á litið virðast vera
heldur færri Reykvíkingar með schizophreni en
aðrir, 77 á móti 143. Miðað við skiptingu íbúa-
fjöldans gætu Reykvíkingamir verið 76-105 af
þessum hóp. í>ó að þessi munur sé rétt innan þeirra
marka, sem búast má við, er ekki rétt að ganga
alveg fram hjá honum. Munurinn er 1,9 x S.E.
(7,1), svo að verið gæti að hér fyndist raunveru-
legur munur við nánari rannsóknir. Tölur manio-
depressivu sjúklinganna (59/83) svara nákvæm-
lega til skiptingar íbúafjöldans.
í heild eru konur mun fjölmennari meðal þess-
ara sjúklinga, 827 konur, en 680 karlar. Á 3. mynd
sést skipting milli kynja í hinum einstöku sjúk-
fjöldi 3. NIYND.
dómaflokkum (súlan, sem sýnir neuroses meðal
kvenna, er tvíbreið í staðinn fyrir að vera tvisvar
sinnum hærri). Á myndinni sést greinilega að fleiri
konur eru með neuroses og psychoses psycho-
genica, en karlar eru miklu fjölmennari meðal
alcoholistanna.
Á 2. og 3. mynd sést að af einstökum sjúk-
dómaflokkum er neuroses langalgengastur, alls
436, þar af aðeins 9 í sjúkrahúsum, en sjúkra-
húsvist vantar fyrir 23. Mikill meiri hluti er konur
og flestar í Reykjavík (284 og þar af 198 í Reykja-
vík). Næst er schizophrenia 220 (208 í sjúkra-
húsum og 12 vantar sjúkrahúsvist). Skipting milli
kynja, 124 konur og 96 karlar, er rétt á mörkum
þess, sem búast má við (110 ± 14,7). Þriðji al-
gengasti sjúkdómurinn er psychosis manio-de-
pressiva 142 (61 í sjúkrahúsum og þar vantar rúm
fyrir 29 í viðbót). Konur eru 83 en karlar 59.
Annars staðar er talið, að fleiri konur séu haldnar
þessum sjúkdómi en karlar. Samkvæmt þessum
tölum er sennilegt að svo sé einnig hér. Pó er ekki
hægt að segja það með vissu hér, þar eð tölumar
eru alveg á mörkum þess, sem verið gæti, ef
reiknað er með sömu skiptingu milli kynja og er
meðal íbúanna (71 ± 11,8). Hér er reiicnað með,