Sagnir - 01.06.1993, Síða 10
sina að rekja til sameiginlegra lífskjara,
sameiginlegra, arftekinna einkenna,
sameiginlegra endurminninga, sam-
eiginlegra vona og sorga, sameigin-
legra þráa og hugsjóna. Og eitt af aðal
lífiskilyrðum þjóðarinnar er einmitt
það, að varðveita þetta innra samband
óslitið."’
A ,Jcppadegi Jjölskyldiinnar’’ er þjóðarstoltið sameiniitgarajl.
fræði við Háskóla íslands13 þurfti
ekki að horfa upp á nemendur
deildarinnar fallast á viðhorf á borð
við þessi og þvílík. „Hvert er þá
orðið okkar starf’ hefði hann
kannski hugsað, maðurinn sem
trúði því að þjóðemistilfinningin
væri ein göfugasta tilfmning
mannsins,14 maðurinn sem átti
„verulegan þátt i þvi að móta við-
tekna söguskoðun Islendinga”.15
Eg geri Jón Aðils að umræðuefhi
hér, annars vegar vegna þess að
hann má taka sem fulltrúa fynr
þau viðhorf um þjóðeniismál sem
þeir lkenan og Anderson hafa
tekið að sér að kryfja, - fyrir þá
væri hann kannski „áhugaverð
tegund”,- hins vegar vegna þess
að áhrif hans á söguskoðun Islend-
inga eru veruleg að mati fróðra
manna.
Fyrir Jóni hefur þjóðin flesta
þá eiginleika sem hinir tveir hafa
vegið og léttvæga fundið. Ut úr
texta hans má áreynslulaust lesa
þá hugmynd að þjóðin sem heild
sé eins og nokkurs konar lífvera.
Böndin eða skyldleikinn á milli
þeirra einstaklinga sem mynda
þjóð er þannig allt annars eðlis en
böndin milli einstaklinga af óliku
þjóðemi. Sjálfur orðar Jón þessa
lífveruhugmynd m.a. á eftirfar-
andi hátt:
Þjóðin er eins og nokkurs kon-
ar sjálfstæð og óslitin heild, þar
sem allar lífshreyfingar eiga rót
ISLAND ER
LAND ÞITT
(Texti: Margrét Jónsdóttir)
ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Island í huga þér, hvar sem þú ferð.
Island er landið, sem ungan þig dreymir,
ísland í vonanna birtu þú sérð.
Island í sumarsins algræna skrúði,
ísland með blikandi norðljósatraf.
Island er feðranna afrekum hlúði.
Island er foldin, sem líftð þér gaf.
Island er þjóðin, sem arfinn þinn geymir.
Islenzk er tunga þín, skír eins og gull.
Islenzk sú lind, sem um æðar þér streymir.
Islenzk er vonin af bjartsýni full.
Islenzk er vornóttin albjört sem dagur,
Islenzk er lundin með karlmennsku þor.
Islenzk er vizkan, hinn íslenzki bragur.
Islenzk er trúin á frelsisins vor.
fsland er land þitt, því aldrei skal gleyma.
Islandi helgar þú krafta og starf.
íslenzka þjóð, þér er ætlað að geyma
íslenzka tungu, hinn dýrasta arf.
ísland sé blessað um aldanna raðir,
fslenzka moldin, er líftð þér gaf.
ísland sé falið þér eilíft faðir.
ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf.
Lífvem eða heildarhugsun Jóns birtist
misjafnlega beint en fmna má dæmi þar
sem Jón líkir þjóðinni bemm orðum við
fyrirbæri jurtaríkisins, sem raunar er hjá
honum hvorki meira né minna en aust-
urlensk undrajurt: ,,I>að er líkt með þjóð-
imar eins og með þessa jurt” segir hann.
„Þær þroskast og dafna, lifsvökvinn
streymir án afláts i æðum þeirra og fram-
leiðirkvisti og knappa..” 17
Þjóðin sem er samansafn einstaklinga
er þannig ein óslitin heild sem á
sér sameiginleg lífskjör, arftekin
einkenni, endurminningar, von-
ir, þrár og sorgir, já og æðar og
lífsvökva. I>að þarf þvi ekki að
koma á óvart að þjóðin eigi sér
eðli, raunar felst það í því sem á
undan er komið. í lýsingu á Al-
þingi liinu forna fer Jón mörgum
orðum um eðli þjóðarinnar, lífið
eins og það var á Alþingi, ,, svo
þróttmikið, svo viðburðaríkt og
glæsilegt, ...samsvarar í öllum
greinum insta eðli íslenzku þjóðar-
innar þegar hún var á sínu
fegursta skeiði.”1" (leturbreyting
mín)
l>aö er augljóst af þessum orð-
um Jóns að þjóðin er í huga hans
annað og meira en einhvers kon-
ar samtök eða samfélagsform sem
menn hafa ákveðin tæki til að
koma sér saman um líkt og
Renan leiðir rök að. Hugtakið
„samkomulag” eða „val” er hvað
varðar spuminguna um þjóðemi
víðs fjarri Jóni. Fyrir honum ent
örlög mannsins ráðin við fæðingu,
hann fæðist sem hluti af ein-
hverskonar þjóðarlíkama, kvistur
eða knappur á jurtinni þjóð, og
þjóðemistilfinningin er ein hans
sterkasta og göfugasta tilfmning
um leið og hún er „sú tilfinning,
sem á sér dýpstar rætur í þjóðar-
eðlinu.”'9. Islendingseðlið er með-
fætt.
En Jón þessi Aðils með alla sína
8 SAGNIR