Sagnir - 01.06.2001, Síða 26
stjórnmálamenn eins og þeir væru enn á lífi, við-
stöddum til vandræða. Eftir 1906 fór hún örsjaldan
út fyrir lóðarmörk Wahnfried og þá einungis í fylgd
sonar síns. Hún steig ekki aftur inn fyrir dyr í
Festspielhaus fyrr en 1924. Fáir vissu hvort hún
hafði gert sér grein fyrir því að fyrri heimsstyrjöldin
átti sér stað.32
Þegar Siegfried tók við taumunum í Bayreuth
bundu margir vonir við að hátíðin yrði „þýskari“.
Ymsir þjóðernissinnar höfðu lýst yfir áhyggjum
sínum vegna „óþjóðlegrar" forystu Cosimu, enda
ítölsk í annan legginn en ungversk í hinn.33 Þeir urðu
fyrir sárum vonbrigðum með Siegfried. í stað þess að
taka undir málstað þjóðernissinna og hægriafla forð-
aðist Siegfried að færa Bayreuth í hringiðu pólitískra
skoðanaskipta. í upphafi þriðja áratugarins urðu
kröfur Bayreuthklíkunnar, en svo voru hægrisinnaðir
og þjóðernissinnaðir áhangendur hátíðarinnar
gjarnan nefndir, sífellt háværari um að útiloka bæri
alla gyðinga frá starfsemi hátíðarinnar. Hún varð
fyrir miklum vonbrigðum þegar Siegfried réðst opin-
berlega gegn þessum viðhorfum 1921 og þvertók
fyrir að slíkt kæmi til greina. Siegfried gaf líka í skyn
að þýskt þjóðerni væri ekki skilyrði fyrir þátttöku í
hátíðarstarfseminni. Fjölmargir gyðingar sungu í
Bayreuth á dögum Siegfrieds og Cosimu.3,1
Eftir sýningu á Meistarasöngvurunum 1924 brut-
ust út æsileg fagnaðarlæti meðal fjölmargra áhorf-
enda úr röðum Bayreuthklíkunnar. „Deutschland,
Deutschland úber alles!“, hrópuðu gestir ákaft. í
stað þess að fylla Siegfried stolti gramdist honum
viðbrögðin og þau fengu honum áhyggna.35 Við-
brögð Siegfrieds við þrýstingi klíkunnar og kröfum
um gyðingalausa Bayreuth voru fyrst og fremst til
varnar pólitísku sjálfstæði hátíðarinnar. Sjálfur var
hann allt annað en ósnortinn af þeirri trú að flutn-
ingur og uppsetning verkanna færu best í höndum
þýskra listamanna, helst ekki gyðinga. Heimildir
sýna að hann forðaðist að bjóða þekktum gyðing-
legum Wagnerstjórnendum til starfa í Bayreuth af
listrænum ástæðum. Andstaða Siegfrieds gegn
erlendum stjórnendum og gyðinglegum virðist aftur
á móti ekki hafa byggst á persónulegri andúð hans á
gyðingum almennt, andsemitisma, heldur mun
frekar tryggð við venjur og hefðir arfleifðarinnar
í Bayreuth.
Árið 1930 sá Siegfried sér leik á borði til þess að
hamra á pólitísku sjálfstæði Bayreuth. Hann braut
odd af oflæti sínu, skellti skollaeyrum við hefðinni
og bauð hinum ítalska Arturo Toscanini að stjórna í
Bayreuth, sem hann og þáði. Siegfried hafði sex
árum áður reynt þetta bragð en fallið frá því vegna
gríðarlegar andstöðu fjölskyldunnar gegn erlendum
stjórnendum í Bayreuth. Toscanini var fyrsti erlendi
stjórnandi hátíðarinnar. Flugurnar sem Siegfried sló
með þessu voru nokkrar. Þjóðerni Toscaninis var
ekki það eina sem gekk þvert á vilja Bayreut-
hklíkunnar, heldur og einnig stjórnmálaskoðanir
hans. Toscanini var þekktur andfasisti og baráttu-
maður gegn andsemitisma.36 Ráðning hans voru skýr
skilaboð. Auk þessa bar Toscanini ferskan andblæ
með sér í listræna stefnu hátíðarinnar, sem um þessar
mundir sætti harðri gagnrýni fyrir stöðnun og
andleysi.
Á sama tíma og Bayreuthhátíðin festist í sessi sem
samkomustaður þjóðernissinnaðra hægriafla tókst
Siegfried ásamt Toscanini í Bayreuth í júlí 1930.
Siegfried furðu vel að verja sjálfstæði hennar, bæði pólitískt og
listrænt. Þegar forvígismenn nasista voru að fóta sig í þýskum
stjórnmálum á þriðja áratugnum var Siegfried síður en svo
harður andstæðingur þeirra. Hann taldi hins vegar mjög mikil-
vægt að aðskilja listir og stjórnmál.37 Margir hafa velt því fyrir
sér hvernig saga hátíðarinnar væri ef Siegfried hefði ekki fallið
frá fyrir aldur fram 1930. Aftur er óskynsamlegt að spinna
ímyndaðan kafla aftan við raunveruleikann.
Gestur er inn kominn, hvar skal sitja sjá?
í desember 1908 giftist Eva, dóttir Cosimu og Richards, heim-
spekingnum Houston Stewart Chamberlain. Chamberlain var
kynlegur kvistur, svo ekki sé meira sagt. Þessi enski aðalsmaður
var þýskari en flestir Þjóðverjar og taldi að óskiljanleg mistök
guðs hefðu fætt hann í heiminn í röngu landi. Hann ávann sér
frægð fyrir höfuðrit sitt, Grundlagen des XIX. Jahrhunderts, þar
sem hann greinir mannkynssöguna með hliðsjón af kynþátta-
kenningum 19. aldar. Skoðanir Chamberlains höfðu mótandi
áhrif á kynþáttalegan andsemitisma og Hitler sótti allnokkuð í
smiðju hans þegar hann skrifaði Mein Kampf.ss Chamberlain var
fanatískur Wagneráhangandi og stofnaði þegar fyrir aldamótin
til vináttu við Cosimu. Hann réri allt til æviloka sinna 1927 í
Siegfried og öðrum fjölskyldumeðlimum að taka afgerandi
afstöðu með Bayreuthklíkunni og verja Bayreuth „menningar-
legum bolsevisma“ og óæskilegum áhrifum gyðinga. Undirtektir
annarra en Evu létu á sér standa og Siegfried var lítið um þennan
herramann gefið.39
Chamberlain kynnti fjölskylduna fyrir ágætum vini sínum og
Wagneraðdáanda árið 1923. Sá var ungur og átti samleið með
Chamberlain og Bayreuthklíkunni. Hann hét Adolf Hitler. Þegar
Hitler steig inn í Wahnfried í fyrsta sinn 1923 gerði hann það
aftur á móti ekki sem stjórnmálamaður eða nasisti heldur sem
einlægur Wagneristi. Frá þeirri stundu var Hitler heimagangur í
Wahnfried og fastagestur á hátíðinni allt til 1940.40
Þegar fræðimenn hyggjast sýna fram á illsku og ómennsku
Hitlers er af nógu að taka. Það er hins vegar alltof algengt að
Hitler sé sviptur öllum mannlegum eiginleikum og málaður sem
24