Sagnir - 01.06.2001, Qupperneq 57

Sagnir - 01.06.2001, Qupperneq 57
merkileg ef ekki athyglisverðari og að sér hafi fundist furðulegt að allir gagnrýnendur hafi lofað Odin teatret en ekki litið sýn- ingu Leiksmiðjunnar sömu augum.51 Jón telur að Frísir kalla, sé bautasteinn tilraunaleikhúss hér á landi.52 í Tímanum sagði um þá sýningu: Frísir kalla er ekki sýndur á leiksviði Lindarbæjar, heldur hefur pallur verið reistur á salargólfi og áhorfenda- bekkjum komið fyrir á þrjá vegu við hann. Þessi nýi vettvangur hefur verið ruddur og rúinn flestum ef ekki öllum venjulegum blekkingarmeðölum sínum eins og t.d. leiktjöldum og leikendur látnir standa leikbún- inga- og förðunarlausir eða með öðrum orðum sagt næstum því allslausir frammi fyrir dómurum sínum, áhorfendunum.” Jón Þórisson sagði þetta um sviðið í Frísir kalla: Mér fannst það gefa skemmtilega möguleika. Ég hef séð myndir af mjög skemmtilegum uppfærslum, sem eru á miðju gólfi og þá er dekúrasjónin með og oft hengd upp í loftið í staðinn fyrir að vera á gólfinu, sem stundum get- ur verið truflandi við þessar aðstæður. Ég veit til þess, að leikrit Shakespeares hafa verið færð upp á þann hátt, að sviðið var sett fram í sal svipað og hjá Leiksmiðjunni í Frísir kalla, þar sem fólk gat séð það úr þremur áttum. Þá var dekúrasjónin alveg eins og í venjulegu leikhúsi, öll á gólfinu, leikarar gátu t.d. horfið á bak við súlu úr einni átt en sézt samtímis úr annarri.54 Erlendir straumar Erlend áhrif voru orðin allnokkur í hérlendri leikmyndlist um 1970, bæði vegna þess að leikmyndahöfundar menntuðust nú í auknum mæli erlendis og einnig vegna þess að erlendir teiknarar gerðu hér leikmyndir. Leikmynd Ekkehards Kröhns fyrir upp- setningu Þjóðleikhússins á Fást í árslok 1970 var um margt óvenjuleg, að sögn Gunnars Bjarnasonar. Halldór Þorsteinsson segir um þá sýningu í Tímanum: „Leiktjöldin eru stílhrein, einföld og frumleg. Þau eru í einu orði sagt ósvikið augnayndi og höfundi sínum til stórsóma. Ekkehard Kröhn á listfengi, útsjónarsemi og smekkvísi á óvenjulega háu stigi.“55 Steinþór Sigurðsson segir að Ivar Török hafi komið með ferskan blæ inn í leikhúsið hér um 1970: „Hann gerði persónulega hluti og hafði sinn stíl. Þetta voru öðruvísi áherslur hjá honum.“5S ívar Török gerði fyrstu leikmynd sína hér á landi í Iðnó vorið 1970 við ung- verska leikritið Það er komintt gestur eftir Ungverjann Örkený. Jón Þórisson aðstoðaði Török við að mála þessa fyrstu leik- mynd hans hér. Jón segir að Török hafi komið með ný viðhorf inn í leikmyndagerðina, m.a. tækni við effektamálun með sérstökum penslum. Hann kom úr akademísku umhverfi líkt og Lothar Grund.57 Sveinn Einarsson segir um þá sýningu: „yfir allri sýningunni var framandi blær en þekkilegur, ungverskt í litum (blátt og brúnt)“58 Sveinn segir jafnframt að Török hafi bersýnilega þekkt sínar heimaslóðir. Sigurður A. Magnússon skrifaði um leikmyndir Töröks að þær væru „sannkallað nýnæmi, hlýlegar, fallegar og vandaðar. Török hefur leyst vanda hins þrönga leiksviðs af mikilli hugkvæmni og töfrað fram á sviðinu hið rétta andrúmsloft austur-evrópsks sveitaþorps, þar sem tíminn stendur í stað."” Breytt viöhorf Greinileg viðhorfsbreyting til hérlendrar leikmyndlistar kemur fram á áttunda áratugnum. Hún skýrist að nokkru af aukinni menntun leikmyndahöfunda, auknum fjölda þeirra og aukinni tilraunamennsku á leiksviðinu en einnig af því að leikmyndahöfundar beittu sér í því að kynna sitt fag. Sýning á verkum leikmyndahöfunda var á Kjarvalsstöðum í byrjun október 1979. Jónas Guðmundsson skrifaði af því tilefni hugleiðingu í Tímann þar sem hann fjallar m.a. um mismunandi afstöðu þjóða til leikmyndarinnar: „f Bandaríkjunum til dæmis er oft klappað sérstaklega fyrir leikmynd- inni, eða leikmyndateiknaranum í upphafi sýningar og svo mun í fleiri löndum líka. Á íslandi klappa menn ekki fyrir leikmyndum, og þótt fyrir komi að leikmyndar sé getið t.d. í gagnrýni, heyrir það til hreinna undantekninga. Það er því þörf ábending, sem fólgin er í sýningu leikmyndateiknara..."60 Jónas heldur áfram og ræðir m.a. um afstætt mat á góðri leikmynd, þar sem hún sé bæði leiklist og myndlist hafi hún tvær þungamiðjur; hún geti verið skemmti- leg en falli illa að leiknum. Einnig segir Jónas að erfitt sé að meta það stundum hvað sé upprunaleg leikmynd: Sem dæmi vill undirritaður taka, að fyrir skömmu var hér sýnt enskt leikrit, sem vinsælda naut. Undirritaður átti naumast orð til að lýsa hugkvæmni leiktjaldamálarans og búningateiknarans. Nokkrum vikum síðar átti hinn sami leið um London þar sem verkið var fyrst frumsýnt - og gekk enn -, og viti menn. Þar var notuð nákvæmlega sama leikmynd og sömu búningar og á íslandi. Þessa var hins vegar ekki getið í leikskrá [ljeikhússins hér heima.61 Jónas Guðmundsson segir einnig að sýningin sýni „að við eigum færa sviðsmyndlistamenn. Ekki aðeins hagleiksmenn, heldur einnig listamenn, sem hafa næmt auga fyrir leikhúsverkum... Menn vakna til meðvitundar um að þetta eru ekki sjálfsagðir hlutir, heldur listræn vinna, sjálfstæð, nýsköpun[,] listaverk [a.m.k. stundum], sem gjarnan mætti hefja til meiri vegs í umræðu og skilningi á leikhúsinu sjálfu.““ Nauðsyn rannsókna á leikmyndlist Magnús Pálsson segir um hugtakið leikmynd: „Fyrsta verk félagsins [leikmyndateiknara árið 1965] var að búa til nýyrðið leikmynd sem síðan festist í málinu.“63 Þetta var ári áður en Konunglega leikhúsið í Kaupmannhöfn tók formlega upp starfsheitið „scenograf" (leikmyndateiknari) í stað „teatermaler".64 Félag leikmyndateiknara varð deild í Félagi íslenskra leikara árið 1968. Sú deild fékk inngöngu í höfundaréttarsamtökin Myndstef 1992 auk annarra leikmyndateiknara í kvikmynda- og sjónvarpsgeir- anum. Upp úr því var stofnað fagfélag á nýjan leik, árið 1994, og að þessu sinni kölluðu menn sig leik- myndahöfunda til að leggja áherslu á höfundarétt sinn auk þess að byggja upp ímynd fagsins sem full- gildrar listgreinar. Félagið hefur kappkostað að kynna list og list- greinar félagsmanna og m.a. samið við Upplýsinga- miðstöð myndlistar um að setja upplýsingar um félagsmenn og verk þeirra inn á heimasíðu Upplýs- ingamiðstöðvarinnar á Netinu. Síðustu tvö árin hefur félagið haft aðild að Bandalagi íslenskra listamanna 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.