Sagnir - 01.06.2001, Síða 67

Sagnir - 01.06.2001, Síða 67
Jósef Gunnar Sigþórsson er fæddur árið 1964. Hann útskrifaðist með BA próf í bókmenntafræði frá Háskóla íslands árið 1999. Jósef stundar nú nám I sagnfræði við sama skóla. Einstaklingurinn andspænis markaónum Um frelsi framboös og eftirspurnar og lok sögunnar Það hefur vart farið framhjá neinum þeim sem fylgjast með framvindunni í íslenskum stjórnmálum að áhrif frjálshyggju- stefnunnar (liberalism) hafa orðið mjög áberandi á undan- förnum tveimur áratugum, eins og reyndar víða innan hins vest- ræna heims. Oft hafa þessar breytingar verið tengdar svokall- aðri nýfrjálshyggju sem var að ryðja sér til rúms hérlendis í kringum 1980. Síðan þá hefur íslenskt hagkerfi breyst mikið með frjálsari viðskiptaháttum og stóraukinni einka- og „hluta- bréfavæðingu“ þjóðfélagsins. Mörgum finnst sem þessar nýju áherslur í hagstjórninni hafi aukið stéttaskiptingu innan samfé- lagsins og jafnframt vegið mjög að grunni velferðarkerfisins. Þessi hagstjórnarleið er raunar orðin ríkjandi í þeirri samfélags- gerð sem kennd hefur verið við frjálslynt lýðræði (liberal democracy). Þeir sem hampað hafa þeirri þjóðfélagsgerð hvað mest hafa ekki síst horft til Bandaríkjanna sem fyrirmyndar í þessum efnum. Alkunna er að hið aukna markaðsfrelsi hefur leitt til samruna og blokkamyndunar fyrirtækja, bæði innan ríkja og þá ekki síður á alþjóðlegum vettvangi, og það er vissu- lega umdeilanlegt hvaða áhrif þessar breytingar á viðskiptahátt- um hafa haft á frelsi einstaklingsins. En í þessari stórauknu markaðshyggju er markaðsfrelsinu iðulega hampað og það hefur fengið fremur illa skilgreinda tengingu við einstaklings- frelsið, oft með vísunum í fræðimenn sem voru að setja kenn- ingar sínar fram við allt aðrar aðstæður en eru ríkjandi í flókn- um tæknisamfélögum nútímans. Frelsishugtakið er vissulega vandmeðfarið í fræðilegri um- ræðu enda vísar það í margar áttir og hefur jafnframt tilhneig- ingu til að „fljóta“ með án þess að merking þess sé nægilega vel skilgreind. Vilhjálmur Árnason heimspekingur hefur bent á að með vissum einföldunum megi skipta orðræðu um félagslegt frelsi í tvo meginflokka þar sem annars vegar er lögð áhersla á frelsið sem einstaklingsbundinn rétt og hins vegar sem félagslegt markmið. Þessi aðgreining byggist á því að sumir leggja áherslu á formlegan rétt manna til frelsis en aðrir á þau efnislegu skil- yrði sem þurfa að vera til staðar til að hægt sé að nýta sér þann rétt. Hann telur orðræðu frjálshyggjumanna dæmigerða fyrir fyrri flokkinn en orðræðu jafnaðarmanna fyrir þann síðari. Kenningar frjálshyggjunnar og marxísk efnishyggja eiga það þó sameiginlegt að ganga út frá að efnahagslífið sé grundvöllur allra annarra félagslegra afstæðna.1 Kenningar bæði frjálshyggju- og jafnaðarmanna hafa haft mikil og mótandi áhrif á vestræna samfélagsgerð, en þegar horft er til samtíðarinnar þá virðist kapítalísk markaðshyggja frjáls- hyggjumanna víðast hafa orðið ofan á í hagstjórn- inni. í hugmyndakerfum þeirra Karls Marx (1818- 1883) og Herberts Spencers (1820-1903) birtast lík- lega skýrustu andstæðupólarnir þegar kemur að kenningum jafnaðar- og frjálshyggjumanna. Þeir voru að setja fram samfélagskenningar sínar um svipað leyti og báðir eru að andæfa hugmyndafræði hvors annars, eða öllu heldur þeim gildum sem ólík hugmyndafræði þeirra stendur fyrir. En þó að kenn- ingar þeirra Marx og Spencers séu í veigamiklum atriðum ólíkar má samt greina með þeim ýmis fræði- leg samkenni. í eftirfarandi köflum verða hugmyndir þeirra um frelsi einstaklingsins andspænis frelsi markaðarins skoðaðar og bornar saman með tilliti til þeirrar samfélagslegu útópíu sem birtist skýrt hjá þeim báðum. Þegar horft er til samtímans og mikils uppgangs ný-frjálshyggjunnar þykir reyndar mörgum að „lög- mál“ Spencers um samfélagið sem allsherjarmarkað framboðs og eftirspurnar sé kannski ekki svo útópískt lengur. Franski félagsfræðingurinn Pierre Bourdieu er einn helsti kenningasmiður svokallaðrar mótunarhyggju (constructivism). í skrifum sínum hefur hann gagnrýnt efnahagslega smættarhyggju af því tagi sem birtist í kenningum Marx og Spencers, og andæft samfélagslegum áhrifum ný-frjálshyggj- unnar ásamt því sem hann kallar harðstjórn markað- arins. Þessar kenningar Bourdieus verða í fram- haldinu skoðaðar í samhengi við ólík hugmyndakerfi þeirra Karls Marx og Herberts Spencers, en þó sér- staklega með tilliti til útbreiðslu ný-frjálshyggjunnar og þess sem Bourdieu kallar „raungervingu" útópí- unnar. Þessi „raungerving“ tengist líka hugmyndum um „lok sögunnar" sterkum böndum. Kenningar Karls Marx og markaðurinn sem kúgunartæki í upphafi er nauðsynlegt að árétta hversu róttæk afstaða Karls Marx er til hins borgaralega veruleika og hvernig hann hafnar viðurkenndum samfélags- formum sem sækja gildi sín til hefðbundinna hug- mynda í heimspeki og trúarbrögðum. Um leið hafnar 65
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.