Sagnir - 01.06.2001, Síða 69

Sagnir - 01.06.2001, Síða 69
;si9i Með kommúnískri byltingu áttu öreigar að taka framleiðslutækin eignarnámi til að losna undan firringunni. með tilverugrundvöll sinn. í borgaralegu, kapítalísku samfélagi er eignarhaldið á framleiðslutækjunum ekki í eigu þeirra sem leggja fram vinnuna, það er öreiganna, heldur eru þau í höndum kapítalistanna. Sá sem ekki á framleiðslutæki ræður litlu um framleiðsluafstæður samfélagsins. Þegar vinnan, hin eiginlega lífsstarfsemi mannsins, veitir honum ekki fullnægju þá skapast firring sem segja má að leiði til þess að maðurinn verði aðeins ófrjáls afurð afurða sinna. Þannig girða framleiðsluhættir hins kapítalíska samfélags fyrir persónuþroska öreiganna. Leiðin til frelsisins iiggur í gegnum þroskann, en hún er fullkomlega ófær nema að öreigarnir losni undan firringunni. Til þess er aðeins ein leið fær: Kommúnísk bylting þar sem öreigarnir taka öll framleiðslutæki eignarnámi með tilheyrandi afnámi séreignar. Þegar markmiði byltingarinnar hefur verið náð með fullkomnu afnámi stéttaskiptingar vill Marx leysa ríkisvaldið upp í smáar einingar, þar sem samfélagsgerðin verður sambærileg því formi sem birtist í kenningum anarkista.7 Helsta „framleiðslutæki“ frelsisins samkvæmt kenningum frjálshyggjunnar, frjáls markaður framboðs og eftirspurnar, er þannig helsta orsök samfélagslegs ófrelsis og firringar í kenn- ingum Marx, enda tengist persónulegt frelsi einstaklingsins ekki tilteknum borgaralegum mannréttindum heldur félagslegu markmiði sem aðeins kemur til með að nást við tilteknar efnis- legar aðstæður. Skilningur á hugtakinu frelsi í borgaralegu sam- félagi gengur hins vegar út á frjálsa verslun, frjáls kaup og sölu. Þannig hefur borgarastéttin breytt manngildi í markaðsgildi og sett samviskulaust verslunarfrelsið í öndvegi. Raunar skilgreinir Marx grunneiningu frjálshyggjunnar, séreignina, eða öllu heldur rétt einstaklingsins til hennar sem rétt til að ráðstafa auðlegð sinni að vild óháð samfélaginu og án tillits til annarra meðlima þess. Á þeirri frelsishugmynd grundvallast borgaralegt samfélag. Þetta veldur því að einstaklingurinn upplifir í umgengni við samborgara sína aðeins takmarkanir á eigin frelsi en ekki raun- gervingu þess. Þannig snúast borgaraleg mannréttindi um aðskilnað einstaklings og samfélags og ganga því gegn félags- legu hlutverki einstaklingsins sem hluta af heild tiltekinnar teg- undar. Það er ekki fyrr en kommúnískt samfélag hefur komið í staðinn fyrir borgaralegt samfélag, með stéttum sínum og stétt- arandstæðum, sem upp rís „samfélag manna, þar sem frjáls þró- un hvers einstaklings er skilyrði fyrir frjálsri þróun heildar- innar.“8 Þannig álítur Marx að frelsið geti aðeins orðið markmið en ekki veruleiki í kapítalísku samfélagi. Með afstöðu sinni til hins svokallaða frjálsa markaðar er óhætt að segja að Marx gerist sjálfkrafa hatrammasd andstæð- ingur frjálshyggjunnar enda er kenningum hans ekki síst beint gegn henni. En með því að tengja díalektík sína efnahagsþætt- inum einum þar sem löggengi sögunnar grundvallast á gagn- virku sambandi hans við hugmyndaheim samfélagsins einfaldar Marx gríðarlega mjög flókin ferli. Það er þó rétt að hafa í huga að hann er að setja fram kenningar sínar fyrir daga velferðarkerfisins á tímum þegar stór hluti alþýðunnar bjó við gríðarlega fátækt og bágur efna- hagur mótaði líf fólks meira en aðrir þættir þess. Frjálshyggjan og „þróunarkenning" Herberts Spencers Uppruni frjálshyggjustefnunnar (liberalism) hefur löngum verið rakinn til Englands þar sem hún mót- aðist og tók á sig þær myndir sem þekktastar eru í dag. Frjálshyggjan er auðvitað ekki einsleitt fyrirbæri enda hefur hún runnið saman við ýmsar hugmynda- stefnur svo að úr hefur orðið bræðingur af margvís- legum toga. Það er til dæmis mikill munur á „Laissez Faire“9 stefnu klassískrar (classical) frjálshyggju og lýðræðislegri (democratic) frjálshyggju sem hafnaði þeirri stefnu og taldi ríkisafskipti gjaldgenga og nauðsynlega leið til að koma á meiri jöfnuði í skipt- ingu lífsgæðanna.10 Þótt allir þeir sem kenna sig að einhverju leyti við frjálshyggju eigi það sammerkt að leggja áherslu á hamingju og frelsi einstaklingsins annars vegar og frelsi markaðar og samfélags hins vegar, þá eru frjálshyggjumenn engan veginn sam- mála um hvaða skilyrði þurfi að vera til staðar til að það frelsi sé í hámarki. Enski heimspekingurinn Herbert Spencer er í hópi þekktustu og umdeildustu frjálshyggjumanna 19. aldar og kenningar hans tengdar félagslegum darwinisma hafa haft mikil áhrif. Hann var virtur innan breska vísindasamfélagsins og var í vináttu- sambandi við marga þekkta meðlimi þess, svo sem John Stuart Mill. Hann kom einnig að ritstjórn The Economist um fimm ára skeið (1848-1853) en á þeim tíma var blaðið helsta málgagn þeirra sem börðust fyrir viðskiptafrelsi og „Laissez Faire“.'' Því hefur verið haldið fram að Spencer hafi gert það sama fyrir (ný-)frjálshyggjuna (libertarianism)12 og Marx fyrir kommúnismann, það er gefið stefnunni sterkan fræðilegan grundvöll út frá þeim vísindalegu við- tniðum sem í gangi voru á hans tíma.13Mjög margt í skrifum Spencers má líka beinlínis túlka sem andóf og áróður gegn þeim sósíalísku hugmyndum sem voru í farvatninu þegar hann var að setja fram kenn- ingar sínar. Rétt eins og Karl Marx grundvallar Herbert Spencer hugmyndir sínar um frelsi mannsins á grein- ingu á sögulegri framvindu þar sem efnahagslegar afstæður eru helsti drifkrafturinn. En þó að grunn- hugsun Spencers gangi út frá einstaklingnum og nauðsynlegu valfrelsi hans þá byggist hugmyndakerfi hans og söguskoðun á félagslegri samvirkni, og má jafnvel segja að einstaklingurinn virki frekar smár innan um þau (markaðs)öfl sem þar eru að verki. Söguskoðun hans markast mjög af þróunarkenningu Charles Darwins (1809-1882) um uppruna og vöxt tegundanna. Spencer hafnar þeirri viðteknu kenningu að hægt sé að útskýra tilurð mannlegra samfélaga út frá hugmyndinni um að þau séu sköpuð eða búin til af æðri öflum og/eða með lagasetningum einstakra löggjafa,14 en sú samfélagsmynd feli í sér þann mann- skilning að einstaklingurinn sé eins og tilbúin brúða sem sköpuð hafi verið inn í kyrrstæða heimsmynd. Með vísunum til sögunnar og hinna formgerðarlegu samfélagsbreytinga sem þar má finna telur hann aug- 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.