Sagnir - 01.06.2001, Page 97
Meyjarímyndir líkt og Marianne, Frelsisstyttan og Jóhanna
af Örk eru táknmyndir háleitari hugsjóna, fórnfýsi og fráhverfu
frá flokkadráttum. Tilgangur þeirra er að persónugera göfugar
hugsjónir lands og lýðs líkt og frelsi, jafnrétti og bræðralag
gagnvart vá erlends og rustafengins árásarliðs.10 Einnig var slík-
um ímyndum ætlað að höfða til kvenna svo að þær Iegðu sitt af
mörkum til hergagnavinnslunnar líkt og í bandarísku áróðurs-
myndinni The Hidden Army sem lýkur með því að sýna frelsis-
styttuna með orðunum „Það tekur engin þessari konu fram.“n
Slík skilaboð ber að skilja sem svo að konur velti fyrir sér hvort
framlag þeirra til styrjaldarinnar sé nægt auk þess sem það
minnir þær á til hvers er barist.
Það er þó athyglisvert að meyjarímyndin, sérstaklega hin
svívirta, virðist eiga sér takmarkaðan tíma í styrjöld. Sú virðist
að minnsta kosti hafa verið raunin í Frakklandi í fyrri heims-
styrjöldinni en slíkar ímyndir voru einkum notaðar í upphafi
styrjaldarinnar þegar Frakkar voru nær sigraðir. Eftir því sem
styrjöldin dróst á langinn hefur þurft árásargjarnari og sterkari
ímyndir til að efla baráttuþrek.12
Móðurímyndinni er ekki einungis ætlað að minna karlmenn
á vöxt og viðgang þjóðarinnar og kynstofnsins gagnvart
erlendri vá heldur á hún líka að minna þá á að með því að berj-
ast eru þeir að þakka fyrir gott uppeldi og ástúð móðurinnar
með því að verja hana árás. Ef móðirin er landið og þjóðin er
verið að þakka landinu og þjóðinni fyrir að uppfóstra okkur líkt
og sálgreinirinn J.C. Flugel bendir á:
Okkur er tamt að líta á föðurland okkar sem mikilfeng-
lega móður sem fæðir, nærir, verndar og þykir vænt um
syni sína og dætur og innrætir þeim ást og virðingu fyrir
sér og hefðum sínum, siðum og stofnunum en í staðinn
eru öll börn hennar tilbúin að vinna og berjast fyrir hana
og framar öllu að vernda hana fyrir óvinum hennar.
Mikið af þeim hryllingi og ógeði sem vakna við hug-
myndina um innrás óvinahers í föðurlandið er vegna
þeirrar ómeðvituðu hneigðar að líta á slíka árás sem van-
virðingu og ofbeldi gagnvart móðurinni.13
Móðurímyndinni er líka ætlað að auka fórnarlund hermanna og
sætta þá betur við hugsanlegan dauðdaga. Samlíking móður og
fósturjarðar er ætlað að veita hermönnum þá huggun að þeir
sem deyja á vígvellinum séu í raun að sofna í örmum elskandi
móður. Á dulrænan hátt verður hermaður, sem deyr fórnar-
dauða á vígvellinum, að nýju einn með móðurinni en slíkt hefur
ekki gerst síðan í móðurkviði.14
Þessar karllægu og upphöfnu kvenímyndir eru næsta mátt-
litlar ef þær eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Ekki er unnt
að heyja langt stríð í nafni algóðrar, dyggðum prýddrar móður
eða meyju ef engin slík finnst í heimalandinu. Á stríðstímum er
brugðist við þessu með endurtúlkun kvenhlutverksins.
Endurgeröa konan
í ritgerð sinni Escape form Freedom, sem Erich Fromm ritaði
sem viðbrögð við uppgangi fasismans í Þýskalandi, segir hann
að hugmyndin um frelsi og ábyrgð einstaklingsins sé ógnvekj-
andi. Sjálfið er ómerkilegt og eitt í heiminum. Sökum þess er til-
hneiging meðal manna að flýja sjálfið og gerast auðmjúklega
háðir stærri stjórnareiningu í samfélaginu, hvort sem það er
trúar- eða hugmyndafræðileg hreyfing.15 í ritgerð Rödu Ivekovic
kemur fram skilningur femínista á þessari hneigð:
Karlmaðurinn er „heill“ fyrir tilstilli samlífs hans
við móðurlegan líkama þjóðarinnar og hersins sem
útvíkkaðra endimarka líkamans. Einstaklingurinn gefur
sig af fúsum og frjálsum vilja á vald hinnar stærri heildar
vegna óttans við að vera sundraður og aumur
ef hann er einangraður. Að leita öryggis í
hópum og treysta á ofbeldi er greinilegt merki
um Ieit glataðrar heildar og merki um söknuð
á hinu „altæka".16
Það virðist harla ósanngjarnt að leggja að jöfnu inn-
tak herútboðs í Þýskalandi nasismans og í Bandaríkj-
unum í síðari heimsstyrjöldinni vegna ólíks siðferðis-
legs og hugmyndafræðilegs inntaks. Á hitt verður þó
að líta að styrjöld krefst þess ævinlega að sjálfið sé
lagt til hliðar fyrir hagsmunum heildarinnar og hefur
því sérhver styrjöld ákveðin fasísk einkenni, þ.e. skil-
yrðislausa hlýðni við valdboð að ofan. Sökum þess
tel ég leyfilegt að nota yfirdrifna kynþáttahyggju (og
þar af leiðandi skýra stefnu) nasista til þess að skýra
hvernig kvenhlutverkið var endurskipulagt í aðdrag-
anda styrjaldar með tilliti til aldarinnar allar.
Fasisminn vill heimta konuna aftur úr „firru“ nú-
tímans aftur í hefðbundið hlutverk sitt sem móður.
Adolf Hitler sagði að konan ætti sér líka vígvöll og
með hverju því barni sem hún fæddi í heiminn væri
hún að berjast fyrir þjóð sína.17 Til þess að mótmæla
nútímalegu líferni kvenna eru einatt fundnar sjón-
rænar táknmyndir, svo sem endurvakning á notkun
fornra þjóðbúninga sem skírskotar til glæstrar fortíð-
ar hefðbundinna fjölskyldugilda. Enn í dag eru þjóð-
búningar notaðir í undanfara styrjalda, hvort sem
það á að teljast merki þjóðerniskenndar eða sem
skírskotun til ákjósanlegra fjölskyldugilda.
Fortíðarhyggja nasista var slík að þeir hvöttu
konur eindregið til þess að snúa sér að nýju að
fornum heimilisiðnaði, líkt og kom fram í Völker-
ischer Beobachter árið 1936: „Það hlýtur að virðast
ótrúlegt að konur og stúlkur skuli snúa sér aftur að
vinnu við rokka og vefstóla. En þetta er ákaflega eðli-
legt. [...] Þessi verk verða konur og stúlkur þriðja rík-
isins að taka upp aftur.“18 Sömuleiðis er flestum
kunnug þekkt fréttamynd af fjöldafundi í Serbíu þar
sem Slobodan Milosevic smakkar á heimagerðu
Verk Adolf Wissel, Sveitafjölskylda, var Hitler að skapi enda lýsandi
fyrir hefðbundin fjölskyldugildi.
brauði konu í þjóðbúningi, sem undirstrikar þessi
sömu gildi. Ungar stúlkur í þjóðbúningi geta líka
verið látnar tákna glötuð landssvæði líkt og gert var
í Frakklandi fyrir fyrri heimsstyrjöld en þá voru hin
glötuðu héruð Alsace og Lorraine í líki slíkra stúlkna
sem voru svívirtar af þýsku ofurvaldi.19
Ekki er nóg að mæra einungis liðna tíð heldur
verður líka að benda á fánýti nútímastöðu konunnar.
95