Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 96

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 96
226 HELGAFELL Ég minntist á Akrafjall og nú vil ég taka það sem dæmi um form íslenzks landslags. tJr Reykjavík að sjá er það eins og kletta- veggur, sem steyptur hefur verið í heilu lagi en fínlegri að vísu en mörg hamrabelti ís- lenzkrar náttúru. Það eru líka þessir grófu drættir, sem eru sérstaklega áberandi í lýs- ingum málaranna af fjallinu. Þeir stinga í augun við fyrstu sýn. Hins vegar geta menn ekki horft á fjallið til lengdar án þess að upp- götva hin fjölmörgu smáatriði innan ramma massans. Efst komum við auga á línuna, sem nemur við himininn, langa og blæbrigðaríka en örþunna og mjóa línu, svo manni finnst, að það mætti svipta henni í sundur í einu vet- fangi. Út frá henni kvíslast margar línur álíka veikbyggðar. Þær skoppa niður eftir hlíðunum eins og lækjarsprænur og skera heildarflötinn niður í margvíslegar smærri skákir. Þessar skákir eru bláar eða grábláar, stundum fjólulitaðar eða jafnvel grænleitar og rauðar í morgunskímunni og kvöldrökkr- inu. Nú væri engin goðgá að hugsa sér, að málari færði sér í nyt þessa deilingu Akra- fjalls: að hann færi ósköp frjálslega með stef- ið, semdi við það margskonar tilbrigði en léti þó grilla í heildarmyndina. Þannig fóru kúb- istarnir að á fyrstu tugum aldarinnar og ár- angurinn varð meira að segja hinn prýðileg- asti. En einhvern veginn varð þetta þreyt- andi og ófrjótt starf til lengdar. Hvers vegna? Vegna þess, að fjallið eins og við skynjum það með sjónhimnu okkar er raunheimur landslagsins. En raunheimur málverksins, er hann að ýmsu leyti fjarskyldur formi landslagsins? Ég er ekki í nokkrum vafa um það. Að minnsta kosti er þetta tvennt jafn ólíkt hvort öðru og landslagið er ævinlega frábrugðið verkum mannanna. Og ég held satt að segja, að bilið sé svo breitt, að ekki sé ómaksins vert fyrir málarana að líkja eftir dráttum landslagsins á einn eða annan veg einkum eftir að þeir hafa komið auga á skika, sem er óþrjótandi uppspretta verkefna. Hitt er svo annað mál, að maðurinn sjálfur er líklega jafn víðfeðm náttúra og fjallið eða sandurinn. Og sem slík- ur verður hann fyrir djúpum áhrifum af landslaginu, birtu þess og skuggum. En víkj- um að raunheimi málverksins. Hér í Reykja- vík var á síðastliðnu hausti haldin málverka- sýning, sem dró hann svo eftirminnilega fram í dagsljósið, að jafnvel sumir efasemdarmann- anna hlutu að reka upp stór augu. Nú ætla ég mér ekki þá dul að gera grein fyrir list Þorvalds Skúlasonar í stuttri tímaritsgrein. Þessar myndir snerta svo margvísleg vanda- mál, að óhugsandi væri að kryfja þau til mergjar í einni svipan. Samt freistast ég til að minnast á eina mynd og það er vegna þess, að aflið, sem býr í listamanninum og leitar útrásar í litahljómum, sterkbyggðum og fín- gerðum á víxl, þjappast betur saman í henni en öllum hinum að mínum dómi. Þetta er meðalstór mynd, sem hékk á suðurvegg Lista- mannaskálans til hægri í miðju. Hún ber hið stutta og laggóða nafn: málverk. Hvernig lítur hún út að innanverðu? Ég skal reyna að svara þessari spurningu. A grunni dúks- ins myndast annar grunnur við jaðrana. Hann þekur ekki stóran hluta af myndinni en er samt ótrúlega fyrirferðarmikill. Hann er gulur og rauðgulur. Inni í þessum grunni rís upp formklasi. Hann á upptök sín í láréttu ramma- línunni að neðanverðu en stöðvast við þá efri. Eða með öðrum orðum: Hann er eins og hlutur, sem stendur á jörðinni en hallast samt dálítið til hægri. Burðarstoðir hans eru nokkr- ir bláir, grænir, gráir eða fjólulitir fletir, sem teygja sig yfir dúkinn þveran og endilangan. Þessir fletir eru í rauninni mjúkir og léttir í senn. Þrátt fyrir það kynnu þeir að virðast þunglamalegir og myndin stirðleg, ef dílarnir, litlu skákirnar og línurnar létu ekki að sér kveða. Þessi smáatriði, ef smáatriði skyldi kalla, skapa hressandi andrúmsloft í kringum sig á ólíklegustu stöðum. Samt er þeim kom- ið fyrir á svo uppburðarlítinn hátt í mynd- inni, að áhorfandinn verður þeirra ekki var fyrr en hann fer að líta í kringum sig í alvöru. í formklasanum liggur stíll myndarinnar fólg- inn. Og þar býr líka lirynjandi hennar, hraði hennar. Ýmsum kann nú að þykja undarlegt að tala um hraða í kyrru málverki einkum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.