Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2007, Side 82
BIRNA ARNBJÖRNSDÓTTIR
lenskunámskeið, námsgögn eru af skornum skammti og kennarar ekki í
stakk búnir til að takast á við kennsluna vegna þess að þá skortir mennt-
un og faglegan stuðning. Þessi atriði draga síðan enn frekar úr hvatan-
um til að læra tungumálið.
Val á tungumáli í fjöltyngdu samfélagi er í eðli sínu pólitískt og stýr-
ist af þeim menningarlegu, félagslegu og persónulegu skilaboðum sem
málhafi vill senda um sjálfan sig og/eða viðmælandann, umræðuefnið
o.s.frv.60 Það tungumál sem málhafi velm að nota og læra, og við hvaða
aðstæður hann gerir það, er gildisbundið val með vístm til valdastöðu,
málstefhu og sjálfsmyndar málnotenda og viðmælenda þeirra.61 Mest
reynir á þetta val í fjöltyngdum samfélögum. Þetta hefur þó ekla alltaf
verið þannig. Bókmenntir innflytjenda sem fluttu til Norður-Ameríku
tun aldamótin 1900 voru uppfullar af lýsingum á því hvernig innflytjend-
ur samsömuðust bandarísku og kanadísku samfélagi, þ.e. hvernig þeir
upplifðu „ameríska drauminn“. Umfjöllun um tungumálanámið sjálft
var hins vegar af skornum skammti. Fræðimenn hafa rakið það til þess
að innflytjendur litu ekki á tungumálið sem sérstakan Þránd í Götu á
leiðinni upp þjóðfélagsstigann á þeim tíma. Nú eru aftur á móti aðrir
tímar. Góð menntun er forsenda velgengni í samfélaginu og til þess að
öðlast góða menntun þarf góða málfærni.
Að semja um nýja sjálfsmynd, í jjölmenningarlegu samfélagi
Til að tryggja aðgengi allra að samfélaginu geta tungumál ekki lengur
verið þjóðartákn á sama hátt og áður var. Islenska er mál allra sem búa á
Islandi, hvort sem þeir líta á sig sem Islendinga eða ekki. Innflytjendum
þarf að gefa tækifæri til að læra nýja málið og nota það. Kenna þarf virð-
ingu fyrir menningu innflytjenda og efla stuðning við þá til þess að þeir
geti haldið við máli sínu og menningu í ljósi þess að tvítyngi fyrstu kyn-
slóða innflytjenda er grundvöllur að fúllri þátttöku í íslensku samfélagi.
Með því að styrkja móðurmál barna innflytjenda er máltaka nýja máls-
ins styrkt. Efla þarf ffæðslu fyrir foreldra tvítyngdra barna og auka fjöl-
menningarlega kennslu fyrir alla. Stórefla þarf menntakerfið og gera það
60 LePage og Tabouret-Keller, Acts ofldentity: Creole Based Approaches to Language aiid
Ethnicity; Susan Gal, „Language and political economy", Annual Reviev) of Anth-
ropolgy, 18/1985, bls. 345-367; Carol Myers-Scotton, Duelling Languages: Gram-
tnatical Structures in Code Switching, Oxford: Oxford University Press, 1993.
61 Bourdieu, Outline ofa Theoiy ofPractice.
8o