Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Side 11
ÞJÓÐVELDIÐ OG SAMTÍMINN
íslendingar sömdu við 1262 og þ\n sé hæpið að skoða samninginn í ljósi
síðari alda.6
Þörfin fyrir sögulegan samanburð
Gömul viðhorf til Gamla sáttmála og þjóðveldis teljast enn ríkjandi, þrátt
fyrir gagnrýni sagnfræðinga. Og lítið lát er á samanburði milli nútíma og
þjóðveldis, og kannski að vonum, segja sumir.
I grein sinni frá 2002 segir Asgeir Jónsson að margt sé líkt með Gamla
sáttmála 1262 og því sem honum fylgdi og hugsanlegum skilyrðum og
kringumstæðum sem tengjast umræddri inngöngu Islendinga í ESB. Hann
telur ESB jafngilda Noregskonungi og segir að hinn svokallaði samningur
íslendinga við Olaf helga, Noregskonung, samsvari samningi um Evrópska
efnahagssvæðið.7
Starfandi sagnfræðingar hafa lítt tekið þátt í þessum samanburði.
Ástæðan er kannski einkum sú að hann er erfiður, flókið að bera saman lok
þjóðveldis og hrunið 2008, og eins stöðu Noregskonungs og áhrif árið
1262 og Evrópusambandið 2009. Margir hafa áhuga á fortíðinni vegna
þess að þeir leita samsvarana við samtíma sinn. Hættan er sú að færa sam-
tímann yfir á fortíðina og þykjast þannig sjá samsvaranir; menn finna þá
jafnan það sem þeir vilja finna. Stjórnmálamönnum víða um lönd hefur
löngum verið tamt að leita hliðstæðna við eigin samtíma í löngu liðinni
sögu og draga af því lærdóma. Þeir gæta þá sjaldnast að því að samhengi
liðinna atburða var allt annað, aðrar forsendur, aðrar kringumstæður og
allur samanburður því torveldur.8 Sagnfræðingar eru líklega hræddir við
samanburð af því að þeir vilja ekki láta henda sig að færa samtímann yfir á
fortíðina, vilja heldur skoða fortíðina út frá viðhorfum sem þá ríktu. Ahugi
margra á fortíðinni helgast líka af þessu, hún er forvitnileg af því að hún er
svo ólík samtíðinni.9 Kannski er það afstaða margra sagnfræðinga að leggja
mesta áherslu á að skoða fortíðina út frá hennar eigin forsendum og gera
6 Sjá bloggfærsluna „Gamli sáttmáli og Icesave“, http://siljabara.eyjan.is/2009/07/
gamli-sattmali-og-icesave.html.
7 Asgeir Jónsson, „Gamli sáttmáli og innganga í Evrópusambandið. Stendur þjóðin
í sömu sporum og fyrir 740 árum?“, Tímarit Mdls og menningar 63(3), 2002, bls.
9-14.
8 Sjá t.d. John Tosh, The Pursuit ofHistory. Aims, Methods and Nevi Directions in the
Study ofModern Histoiy. Harlow: Longman. 2000, bls. 22-25.
9 Sama rit, bls. 19-22.
9