Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Qupperneq 26
VILHJÁLMUR ÁRNASON
fer yfirleitt ekki á milli mála þegar valdið kemur að ofan, en það getur
auðveldlega farið fram hjá manni þegar það smýgur lárétt inn í formi
aðstoðar og aðlöðunar og einstaklingar laga hegðun sína að því án þess að
þurfa nokkurn tíma að lúta valdboði.5 Hugmjmdina um griðland fræðanna
verður að ígrunda í ljósi þessa. Hún felur alls ekki í sér skeytingarleysi um
það hvernig og í hvaða skyni ffæðin eru notuð heldur hvetur hún til þess
að fræðimenn standi vörð um sjálfstæði sitt gagnvart öllum þeim öflum sem
vinna gegn hinni vísindalegu hugsjón, og að þeir hafi gagnrýnið eftirlit
með störfum sínum í samræmi við það. I þeirri Hðleitni þurfa fræðimenn
að skoða það gagnrýnið hvernig þekkingin er virkjuð í þágu ríkjandi afla í
samfélaginu.6 7
Skilji háskólamenn griðland akademíunnar hins vegar í auknum mæli
þeim skilningi að það sé athvarf þeirra sem vilja hafa frið fyrir veru-
leikanum þá eru áhrifin mbent. Háskólamenn geta þá helgað sig ffæð-
tmum án þess að láta hræringar veruleikans í kring hafa áhrif þar á og eiga
þar með síður á hættu að óhreinka hendur sínar. A hinn bóginn vanmetur
sú afstaða á sinn hátt „hlutdrægni veraldarinnar sjálffar“, eins og Ernst
Bloch orðaði það um miðja síðustu öld.' Bloch bregðm- upp skemmtilegri
mynd sem vert er að minna á hér, meðal annars vegna þess að Pallas Aþena
er í merki Háskóla Islands: „Mínerva hafði ekki aðeins ugluna sér til full-
tingis", skrifar hann, „hún hafði líka skjöld og spjót og uglan hennar er
engin náttugla, heldur ímynd árvekninnar“.8 9
Bloch mælti beinlínis með málefhalega ábjngri „marxískri hlutdrægni“
til þess að vega upp á móti hlutdrægni veraldarinnar sem viðhaldið væri
með „innantómri ffæðihyggju“ og „einangraðri vísindamennsku“.q Mér
virðist hins vegar að krafan um hlutleysi vísinda kalli sjálf á viðnám gegn
öflum sem hamla sannleiksleit vísindanna og krefji fræðimenn um árvekni
5 Þetta er megineinkenni valds í nútímasamfélagi samkvæmt hugmyndum Michels
Foucault, en um þær má til dæmis lesa í köflum úr bókum hans Gæslu og refingu
og Sögu kynlíjsins í íslensku úrvali greina og bókarkafla eftir hann: Alsæi, vald og
þekkitig, ritstj. Garðar Baldvinsson, Reykjavík: Bókmenntafræðistofnun Háskóla
íslands, 2006.
6 Umræðan um hlutleysi vísinda er snúin og margþætt; ég leiði tál dæmis algjörlega
hjá mér umræðu um tengsl hagsmuna, valds og vísinda sem fræðimenn á borð
Júrgen Habermas (Erkenntnis und Interesse, 1968) og Sandra Harding („Strong
Objectivitý1, Synthese 1995) hafa staðið fyrir.
7 Ernst Bloch, „Hlutdrægni vísindanna og veraldarinnar sjálfrar", Arthúr Björgtún
Bollason þýddi, TímaritMáls ogmenningar 35(1-2), 1974, bls. 51-68.
8 Sama rit, bls. 64.
9 Sama rit, bls. 61 og 60.
24