Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Blaðsíða 75
GUÐFRÆÐIN í PÓLITÍKINNI - PÓLITÍKIN í GUÐFRÆÐINNI
endurnýjun rofinna tengsla, tengsla mannsins við Guð, sjálfan sig,
náungann og náttúruna. Fagnaðarerindið um fyrirgefandi náð Guðs íjallar
því um endurnýjun á gjörvallri tilverunni og kallar manninn til félagslegrar
ábyrgðar, auðmýktar og samkenndar sem allt eru andstæður hrokans. Þessi
boðskapur hefur víðtæka skírskotun á Islandi eftir hrunið.
Að rísa gegn ranglœti
Sterk áhersla á samræmi milli kenningar og breytni, „teoríu“ og „praxís“,
hafa víða komið ffam sem afgerandi krafa og gegnt lykilhlutverki í guð-
ífæðilegri umræðu síðustu áratuga. I guðfræði sem ekki er meðvituð um
póhtísk áhrif sín hefur þessu sambandi oftast verið öfugt farið og litið svo
á að kenningin komi fyrst en breytnin svo. I frelsunarguðfræði Suður-
Ameríku var í upphafi lögð áhersla á að guðfræðin væri í eðli sínu útlegg-
ing á hinni réttu iðkun eða réttum „praxís“. Því var litið svo á að rétt
breytni, „ortho-praxís“, þyrfti að koma á undan réttri kenningu, „ortho-
doxíu“.30 Þessi tengsl komu einnig sterkt ffam í guðffæði svartra eins og
hún var sett fram í Kairos-textanum en þar var fólk hvatt til félagslegrar
virkni. I ffamhaldinu var síðan stofnað til sannleiks- og sáttanefhdar sem
tryggja átti að allur sannleikurinn um ofbeldi hvíta minnihlutans gegn
svarta meirihlutanum kæmi fram en slíkt var tahn nauðsynleg forsenda
fyrirgefningar og sáttargjörðar. Lfka leið þyrfti að fara hér á landi til að
lægja þá reiði og græða þau sár sem hrunið hefur valdið. Forsenda þess að
því marki verði náð er að sannleikur hrunsins sé leiddur í ljós, ákært sé
fyrir brot, einstaklingar játi mistök sín eða vanrækslu og þeir sem brugðust
axli ábyrgð.31
Við teljum að full ástæða sé til þess að gaumgæfa hver tengslin séu milli
kenningar og breytni í samfélagi okkar. Hvað merkir til dæmis þegar sagt
er að kristin gildi, þar með talinn kristinn mannskilningur, liggi til grtmd-
vallar við mótun samfélags okkar en síðan álitið réttlætanlegt að gert sé á
ýmsan hátt upp á milli fólks vegna kyns þess, kynhneigðar, kynþáttar,
stéttar eða annarra atriða sem greina okkur að og það þvert á jafnræð-
isreglu stjórnarskrárinnar?3- Kristinn mannskilningur gengur út ffá því að
30 Gutiérrez, A Theology ofLiberation, bls. 8.
31 Sbr. greinina „Sáttaleið - um forsendur fyrirgefhingarinnar“, Morgunblaðið 8. mars
2008.
32 Stjómarskrá lýðveldisins Islands 1944, 65. grein: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum
og njóta mannréttinda án trillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðemisupp-
73