Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Síða 111

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Síða 111
KREPPA, NÁTTÚRA OG SÁLARLÍF mylsnuna sem hrynur af annarra borðum, jafnvel þótt hún sé ríkuleg á sína vísu. Það er þó ekki þessi staðreynd sem olli því félagslega umróti sem átti sér stað eftdr hrunið heldur sjálf afhjúpunin. Afhjúpunin var með þeim hætti að fólk gat ekki vikið sér undan því að taka afstöðu til spurningarinn- ar: Hvað vil ég með þetta samfélag? Þetta er samfélagsleg tilvistarspurning og búsáhaldabyltingin var til marks um að fólk hafði frumkvæði og þor til að takast á við hana. Það er svo önnur spurning hvort íslenskt samfélag hafi einhver ráð til að takast á við þessa spurningu með uppbyggilegum hætti.19 Það sem fólk vill með samfélagið er fyrst og fremst eitt: Að það verði ákjósanlegur vettvangur til að lifa góðu lífi, vettvangur þar sem fólk geti fundið sínu eigin persónulega lífi tilgang. Hver svo sem tilgangur ólíkra einstaklinga er, og hvernig svo sem ólíkir einstaklingar leita tilgangs í líf- inu, þá blasir sú staðreynd við að samfélagið er sá vettvangur þar sem þessi leit fer fram. Og af þeirri ástæðu hlýtur fólk að gera tilkall til þess að eiga hlutdeild í lífi samfélagsins. Ekki er nóg að fólk lítd svo á að það hafi getu til að taka þátt í samfélaginu heldur verður fólk líka að hafa sanngjörn tækifæri til að vera virkt sem þátttakendur í samfélaginu - það verður að eiga þess kost að líta á líf sitt ekki einungis sem líf í samfélagi heldur einn- ig sem líf með samfélagi. En hverjar eru forsendur þess að fólk geti í senn litið á líf sitt sem líf í samfélagi og líf með samfélagi? Annars vegar krefst þessi sýn á hlutverk samfélagsins þess að einstaklingunum sé gert kleift að vera virkir þátttakendur í mótun samfélagsins, þ.e. þessi sýn krefst lýðræð- is sem gegnsýrir alla starfsemi samfélagsins sem varðar almannaheill. Hins vegar krefst þessi samfélagssýn þess að borgurunum séu búnar fullnægj- andi forsendur sjálfsvirðingar. Um þetta seinna atriði segir heimspeking- urinn John Rawls meðal annars: Oftsinnis hef ég sagt að líklega sé sjálfsvirðing mikilvægustu frumgæðin. [...] Við getum greint tvo þætti sjálfsvirðingar [...] I fyrra lagi felur sjálfsvirðing í sér tdlfinningu manneskju fyrir eigin virði, vissu hennar fyrir því að hugmynd hennar um hið góða, um lífsáform hennar, sé þess verð að eftir því sé sótt. I seinna lagi felur sjálfsvirðing í sér tdltrú á eigin getu til að 19 Borgarafundur sem haldinn var í Laugardalshöll þann 14. nóvember 2009 var dæmi um viðleitni tdl að takast á við kreppuna sem afhjúpun bjagaðs gildismats. Sjá http://thjodfundur2009.is/thjodfundur/ (skoðað 14.12.2009).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.