Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Page 162
HILDIGUNNUR ÓLAFSDÓTTIR OG UNNUR M. BERGSVEINSDÓTTIR
um að ræða rannsókn sem byggir á eiginlegum dagbókum þar sem skrá-
setjari skrifar niður atburði liðins dags og hugleiðingar sínar tmi h'fið og
tilveruna. Gagna í þessum rannsóknum var aflað með því móti að lftáll
rannsóknarhópur var beðinn um að halda rafræna dagbók um áfeng-
isneyslu sína og ferðir í veitingahús. Þátttakendur voru beðnir um að skrifa
í dagbókina aðdraganda þess að þeir fóru út að skemmta sér, segja frá því
hvað gerðist og lýsa jafnframt umhverfi og aðstæðum. I upphafi voru
þátttakendum kynnt markmið rannsóknarinnar og gerð grein h,TÍr sið-
ferðislegum vandamálum og trúnaði. Hver þátttakandi var beðinn um að
halda dagbók um áfengisneyslu sína og ferðir í veitingahús í nokkrar
vikur.
Alls fengust 13 manns til að taka þátt í rannsókninni. I hópnum voru
átta konur og fimm karlar, öll á aldrinum 25-35 ára. Þau tilheyra því þeirn
aldurshópi sem helst fer út að skemmta sér og oftast drekkur áfengi á
veitingastöðum samk\’æmt könnun á áfengisneyslu sem Lýðheilsustöð
gekkst fýrir árið 2004.18 Konurnar unnu við ýmiskonar þjónustustörf en
nær allir karlarnir unnu við tölvunar- eða kerfisfræði. Nokkrir einstakling-
anna voru í námi meðffam vinnu. Heimilishald var núsmunandi, sunúr
bjuggu einir, aðrir með vinum eða maka og börnum og enn aðrir bjuggu
heima hjá foreldrum.
Alls fengust 56 frásagnir eða að meðaltah fjórar ffá hverjum einstakl-
ingi. Einn þátttakandi sendi aðeins inn eina færslu en flestar urðu ffásagn-
irnar átta hjá sama einstaklingi. Eftir að samþykki fyrir þátttöku í rann-
sókninni var fengið voru öll samskipti við þátttakendur rafræn. Ollum
persónunöfnum í ffásögnunum var breytt vegna persónuverndar, en nöfn
á skemmtistöðum látin halda sér. I tilvísunum í rafrænu dagbækurnar er
orðalag og stafsetning höfð óbreytt.
Rannsóknin var gerð á tímabilinu frá maí til desember 2006. Hún nær
því yfir sumar, haust og byrjun vetrar. Þátttakendur voru í upphaíi sam-
skipta spurðir hvort þeir teldu árstíðaskipti hafa áhrif á ferðir þeirra á
veidngahús. Flestir sögðust fara oftar út á sumrin og dvelja þá lengur.
Yfirleitt voru sömu staðirnir sóttir en nokkrir nefhdu að á sumrin væri
eftirsóknarvert að fara á staði þar sem hægt er að sitja utandyra. Hvað
félagsskapinn varðar samanstóð hann yfirleitt af sama fólkinu nema hvað á
sumrin bættust gjarnan í hópinn námsmenn við nám erlendis, komnir
heim í sumarleyfi.
18 Lýðheilsustöð, .Áfengisneysla á íslandi. Úthendi á blaðamannafundi 27. apríl
2005“.
160