Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 54
54 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
sígandi lukka er best
Geirlaug Þorvaldsdóttir, eigandi Hótels Holts:
M
ér er að takast að ná því
marki sem ég setti mér
fyrir þremur árum þegar ég
tók við rekstrinum; ég er
að sjá fyrir endann á öllum endurbótum
og endur nýjun sem ég hef efni á,“ segir
Geir laug Þorvaldsdóttir, eigandi Hótels
Holts, en á næsta ári verður hálf öld frá því
hótelið var opnað.
Þegar hún er spurð hvort henni finnist
atvinnulífið vera komið upp úr hjólför -
unum segir hún: „Það þarf meira til.“ Hún
segir „já og nei“ þegar hún er spurð hvort
hún sé bjartsýnni á uppgang atvinnulífsins
en á sama tíma í fyrra. „Bjartsýnin verður
alltaf að vera til staðar en við verðum að
fara vel með þá velgengni sem við búum
við í ferðamálum í dag. Það er ekki sjálf -
gefið að hún vari, svo margir hafa lagt allt
sitt undir. Núna verða allir aðilar að standa
saman sem eiga hlut að máli svo framhald
verði á. Sígandi lukka er best.“
Geirlaug segir að að sínu mati sé brýnasta
verkefni ríkisstjórinarinnar að auðga at -
vinnu lífið og hækka lægstu launin svo allir
geti lifað mannsæmandi lífi.
Þegar hún er spurð hversu auðvelt sé að
stofna fyrirtæki á Íslandi og komast inn á
markaði segir hún: „Ég keypti gamalgróið
fyrirtæki en enginn lifir á fornri frægð. Það
er mikil ábyrgð að hlúa að vörumerkinu og
líka að vera stöðugt í takt.“
Svo er það spurningin um þrenn algeng-
ustu mistök stjórnenda í starfi. „Þau eru
að halda að þeir geti stjórnað fyrirtæki
sínu með augum annarra, hlusta ekki á
starfsmenn sína því stjórnun er samvinna
allra í fyrirtækinu og svo finnst mér margir
vilja fara allt of geyst.“
Geirlaug segir að besta veganestið sem
hún hafi fengið í stjórnun sé allt sem hún
lærði af foreldrum sínum, sem stjórnuðu í
upphafi fyrirtækinu sem hún á í dag. „Þau
voru góðar fyrirmyndir og allt blómstraði í
höndunum á þeim.“
2014
áhrifamestu
konurnar
100
Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands.
Margrét G. Flóvenz,
stjórnarformaður KPMG og í stjórn
Samtaka verslunar og þjónustu.