Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2014, Síða 57

Frjáls verslun - 01.04.2014, Síða 57
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 57 2014 áhrifamestu konurnar 100 heiðarleiki og sanngirni mikilvæg Heiðrún Jónsdóttir hdl., formaður Norðlenska: G óður árangur hefur verið hjá Norðlenska á árinu og eigið fé byggst vel upp síðustu misseri. Þá fjárfesti félagið nýlega í húseignum Vísis á Húsavík og fram undan er skemmtilegt tímabil við að endurskipuleggja framleiðsluna og ná fram góðri hagræðingu,“ segir Heiðrún Jónsdóttir, formaður Norðlenska og lög - maður hjá Aktis lögmannsstofu. „Ég fór úr stjórn Gildis lífeyrissjóðs í vor eftir sex ára setu vegna sex ára hámarks- setu fulltrúa SA í stjórnum lífeyrissjóða. Á þessu tímabili var farið í mikla naflaskoðun á öllum verkferlum og skipulagi og hefur það skilað góðum árangri.“ Þegar Heiðrún er spurð hvort henni finnist atvinnulífið vera komið upp úr hjól - förunum segir hún að fimm árum eftir hrun hefði hún talið að atvinnulífið væri komið á meira skrið. „Þótt maður hefði viljað sjá hraðari þróun er þó ýmislegt sem bendir til þess að atvinnulífið sé loks að komast upp úr hjólförum stöðnunar – en ljóst er að betur má ef duga skal.“ Hún segist vera bjartsýnni á uppgang atvinnulífsins en á sama tíma í fyrra. „Ég tel þó að ástandið sé enn nokkuð við - kvæmt. Fátt laðar að erlent fjármagn og það þarf að skýra og aðlaga enn frekar um - hverfið fyrir fjárfesta. Þannig þarf t.d. að auka trúverðugleika landsins og traust.“ Hvert er brýnasta verkefni ríkisstjórnar ­ innar? „Afnám gjaldeyrishafta með viðeigandi ráðstöfunum og þá þarf að tryggja frið á vinnumarkaði. Mikilvægt er að mismuna ekki aðilum á vinnumarkaði og tryggja þarf friðinn en kjarasamningar við ríkisstarfsmenn eru ekki í takt við þá samninga sem gerðir voru á almennum vinnu markaði. Einnig þarf að vinna enn frekar í því að auka fjárfestingar og fram - kvæmdir. Horfa þarf til bæði innlendra og erlendra aðila auk þess að horfa til þess hvar ríkisvaldið getur komið til.“ Heið rún segir að að sínu viti sé ekki erfitt að stofna fyrirtæki hér á landi. „Hvernig það svo gengur að komast inn á mark aði er mismunandi eftir því hvaða markaði er verið að tala um. Aðgangur að fjár magni getur hindrað eða hægt á för en eðli málsins samkvæmt er erfitt fyrir einstakl inga sem geta ekki lagt fram eitt hvert eigið fé eða trausta sögu að stofna til mikilla skuldbindinga.“ Hvað varðar þrenn algengustu mistök stjórn enda í starfi nefnir Heiðrún að það geti falist í að velja of einsleitan hóp. „Í stað þess að velja inn aðila sem bæta upp þá þætti þar sem veikleiki viðkomandi liggur getur hætta verið fólgin í því að velja aðila sem hugsa með svipuðum hætti og hafa svipaðan bakgrunn. Þá er algengt að stjórn endur verji tíma sínum um of í daglegt amstur í stað þess að horfa til framtíðar og líta til þátta sem geta verið ógnun til lengri tíma litið. Loks má nefna að það eru mistök að álíta sig ómissandi.“ Þegar Heiðrún er spurð um besta vega - nestið sem hún hefur fengið í stjórnun segir hún: „Eitt sem gott er að hafa í huga er að taka verkefnin sín alvarlega en ekki sjálfan sig. Þá er mikilvægt að vera trúr sjálfum sér og temja sér heiðarleika og sanngirni.“ heiðrún er formaður norðlenska hf., formaður íslenskra verðbréfa, vara for ­ maður olíuverslunar íslands og hún er í stjórn ístaks hf., skipta hf., reiknistofu bankanna, símans hf. og landssamtaka lífeyrissjóða. Heiðrún Jónsdóttir hdl., formaður norðlenska.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.