Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 72
72 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
brýnt að virkja kraft í nýsköpun
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands:
K
ristín Ingólfsdóttir nefnir þrennt
þegar hún er spurð hvaða
árangur hún sé ánægðust með
hjá HÍ það sem af er árinu 2014.
„Í fyrsta lagi hefur skólinn haldið stöðu
sinni og bætt sig á lista Times Higher
Education yfir 300 bestu háskóla í heimi.
Þetta hefur breytt alþjóðlegri ímynd
skólans og skapað spennandi tækifæri
fyrir stúdenta og starfsfólk. Í öðru lagi
hafa stjórnvöld markað þá stefnu að
fjármögnun háskólastarfsins verði í takt
við það sem gerist hjá öðrum OECD-
ríkjum og Norðurlandaþjóðum. Þetta er
grundvallaratriði til að við festum í sessi
þann árangur sem náðst hefur og til að
við getum byggt upp þekkingargreinar í
atvinnulífinu. Í þriðja lagi vil ég nefna þá
upp byggingu sem á sér stað hjá Alvogen
á lóð Vísindagarða HÍ og þá verð mæta -
sköpun sem þar verður í framtíðinni.“
Kristín nefnir augljósan vöxt í ferða þjón -
ustu þegar hún er spurð hvort henni finnist
atvinnulífið vera komið upp úr hjólförunum
og bætir við að það hafi úrslitaþýðingu fyrir
hagkerfið á þessum erfiðu tímum. „Það
er jafnframt fyrir hendi mikill kraftur og
þekking sem hægt er að leysa úr læðingi í
öðrum greinum. Við sjáum þetta í hvers
kyns tilraunum til nýsköpunar og stofnunar
nýrra fyrirtækja en það vantar sárlega
fjármögnun.“
Hvað varðar brýnasta verkefni ríkis -
stjórn arinnar segir Kristín að til skemmri
tíma sé mikilvægt að koma lagi á fjár -
mála markaðinn; leysa hann úr höft unum
þannig að hægt sé að styrkja kraft mikil
íslensk fyrirtæki sem skapa verðmæti og
afla okkur mikilvægra gjald eyristekna.
„Það er jafnbrýnt að horfa til lengri tíma.
Allt atvinnulíf er að verða þekkingarknúið
og því mikilvægt að styrkja menntakerfið
í takt við þessar þarfir. Það er oft talað um
mikilvægi erlendrar fjárfestingar. Þetta er
innlent fjárfestingaverkefni og það mikil -
vægasta sem við okkur blasir.“
Hver eru að mati Kristínar þrenn
algengustu mistök stjórnenda í starfi?
„Skortur á framtíðarsýn og skýrum
markmiðum, að vanrækja að hlusta á
samstarfsfólk og viðskiptavini og hræðsla
við að gefa yngra fólki tækifæri til að
blómstra.“
Hvert er besta veganestið sem hún hefur
fengið í stjórnun? „Það er að vegferðin
verður svo miklu ánægjulegri og gangan
svo miklu léttari ef við vitum hvert við
erum að sækja.“
kristín er formaður háskólaráðs
háskóla íslands, hún er í stjórn nordisk
universitetssamarbetet, í stjórn
european university association og
stjórnarmaður í háskólaráði háskólans í
lúxemborg.
2014
áhrifamestu
konurnar
100
Kristín ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Svana Helen Björnsdóttir,
stjórnarformaður Stika, fyrrv. for
maður Samtaka iðnaðarins, stjórnar
maður í vinnudeilusjóði SA.