Frjáls verslun - 01.04.2014, Qupperneq 78
78 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands:
salvör nordal, forstöðumaður siðfræðistofnunar háskóla íslands, var ein af þeim
sem komu að rannsóknarskýrslu alþingis á sínum tíma, en hún telur mikilvægt að
draga rétta lærdóma af því sem kom fram í skýrslunni. salvör segir margt mega
læra af hruninu en til að halda áfram sem heilbrigt samfélag þurfi að staldra við
og gera siðfræðina að hluta af allri ákvarðanatöku.
Hvernig metur þú siðferðið í
atvinnu lífinu núna þegar bráð
um sex ár eru liðin frá hruni?
„Það er mjög brýnt að við
lærum af fortíðinni, að við
temj um okkur að horfast í augu
við mistök sem við höfum gert
og sýnum vilja til að breyta og
bæta. Ég held að við höfum
til hneigingu til að vilja sópa
erfið um málum undir teppi og
þá er ég ekki aðeins með í huga
nýleg dæmi heldur ýmis málefni
úr fortíðinni.
Því hefur verið haldið fram
að Íslendingar viti meira um
sína fortíð en þeir skilja. Það
er til lítils að setja upp rann -
sóknar nefndir ef við erum
ekki einnig til í að vinna með
niðurstöður þeirra. Við vitum
úr skýrslu Rannsóknarnefndar
Alþingis heilmikið um það
hvað gerðist og um starfshætti
en við verðum líka að draga
rétta lærdóma og það eigum við
svo sannarlega að geta gert. Í
siðfræðihlutanum bentum við á
að það mætti ekki einvörðungu
einblína á einstaklinga sem
kynnu að hafa hagað sér með
ámælisverðum hætti heldur líka
að huga að því hvernig við öll
getum lært. Við höfum dálítið
farið í það far að benda á til -
tekna einstaklinga og finnast
svo aðrir vera stikkfrí.“
Það er mikið rætt um sam
félagslega skyldu fyrir tækja –
en ekki eru allir sammála um
hvernig beri að skilgreina þetta
hugtak. Hvað er samfélagsleg
skylda fyrirtækja?
„Í mínum huga á ekki að skilja
samfélagslega ábyrgð þröngum
skilningi eins og Friedman
boðaði, heldur verður að
huga að þeirri stöðu sem fyrir -
tæki hefur í samfélaginu. Hér
standa reyndar fyrirtæki mjög
misjafnlega. Sum hafa mikil -
vægari samfélagslega ábyrgð
en önnur. Sumir bankar, eins
og við sáum, eru kjölfesta í
viðskiptalífinu og ef þeir lenda
í vandræðum skaðast fjöl -
marg ir og jafnvel samfélagið
allt. Slík fyrirtæki bera meiri
samfélagslega ábyrgð en
önnur. Síðan skiptir ábyrgð
gagn vart umhverfi og náttúru
miklu því mengun getur valdið
óbæt anlegu tjóni. Þannig að
siðferðileg ábyrgð felur í sér
að við hugsum um starfsemina
alla út frá siðferðilegum sjónar -
hornum og metum margvíslega
hags muni sem rekstrinum
tengjast.“
Mörgum finnst atvinnulífið
vera farið að líkjast því veru
lega sem var fyrir hrun, til
dæmis með auknum fréttum
af kaupaukum og bónusum
stjórnenda. Hvað finnst þér að
helst beri að varast?
„Ef ég lít til lærdóma af banka -
hruninu þá ber sérstak lega að
varast skammtíma hugsun í
sam bandi við árangurstengingu
eða hvað annað. Fyrir hrun var
allt gírað inn á skammtíma -
sjónar mið, ná sem mestum
hagn aði á sem stystum tíma,
síðan var allt meira og minna
komið á hausinn skömmu síðar.
En það eru mörg önnur teikn
á lofti. Því hefur verið haldið
fram að höftin hér á árum áður
hafi haft mjög vond siðferðileg
áhrif því sumir gátu leyft sér
meira en aðrir vegna aðgangs
að gjaldeyri og svo þurfti
fólk að þekkja fólk á réttum
stöðum til að fá að flytja inn
lúxusvarning. Punkturinn er
sá að höft skekkja markaðinn
verulega. Það sama á reyndar
við um mörg önnur svið þar
sem sumir hafa sterkari stöðu í
skjóli þeirra sem úthluta margs
konar gæðum. Af þessum
ástæðum er mikilvægt að
ákvarðanir séu gegnsæjar og
byggist á almennum reglum.“
Hver er stærsta siðferðilega
spurningin sem Íslendingar
standa frammi fyrir í dag?
„Við, eins og aðrar þjóðir,
stöndum frammi fyrir fjöl -
mörg um erfiðum siðferði legum
spurningum eins og þeim
sem snúa að verndun náttúru
okkar, umhverfi og raunar að
öllum okkar auðlindum. Ég hef
mikið fengist við spurningar í
lífsiðfræði á síðustu misserum
og þær eru margar hverjar
mjög áleitnar og varða þróun
samfélagsins, persónuvernd og
upplýsingaöflun. Svo það er
af nógu að taka. Í mínu starfi
finn ég fyrir talsverðum áhuga
á siðfræðinni. Vandinn er hins
vegar að gera hana að hluta af
allri ákvarðanatöku, menntun
og hugsun um vandamál dags -
ins. Það skortir talsvert á að
það sé gert, þannig að þrátt
fyrir áhuga er eins og fjari hratt
undan henni þegar á reynir.
Ég hef stundum sagt að það
þögnin stórlega vanmetin Í
nÚtÍmaþjóðfélagi
2014
áhrifamestu
konurnar
100
TexTi: erla GunnarsdóTTir