Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 111
ExpEctus
skapar virði með
viðskiptavinum
sínum
Ráðgjafarfyrirtækið Expectus var stofnað fyrir
rúmum fimm árum og hefur vaxið og dafnað
síðan. Hjá félaginu sinna á þriðja tug sérfræðinga
ráðgjöf á sviði stefnumótunar, rekstrar og
upplýsingatækni sem miðar að einu marki – að
skapa virði með viðskiptavinum okkar. Sérstaða
hópsins er að flestir hafa langa og fjölbreytta
reynslu úr atvinnulífinu og hafa tileinkað sér
framsæknustu aðferðir okkar tíma.
Við sækjum okkur framúrskarandi lausnir
hvaðanæfa að og aðlögum þær að íslenskum
aðstæðum. Slík aðlögun þýðir oftast að við
þurfum að gera hlutina hraðar, skilvirkar og
ódýrar án þess þó að tapa gæðum. Smæð
íslenska markaðarins hefur unnið með okkur
hvað þetta varðar og lausnir okkar hafa
vakið eftirtekt í erlendum verkefnum þar
sem kaupendur hafa samanburð við leiðandi
alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki.
Anna Björk Bjarnadóttir hefur áralanga
reynslu sem leiðtogi og stjórnandi í
fjarskiptageiranum og víðar, meðal
annars sem framkvæmdastjóri hjá
Símanum, síðast sem framkvæmdastjóri
tæknisviðs félagsins. Hún hefur
stjórnað breiðri flóru verkefna og sviða
hjá Símanum og þar áður TDC AS,
eða allt frá þjónustumálum, sölu- og
markaðsmálum, vöru- og viðskiptaþróun,
yfir í alla tækniflóruna sem finna má á
fjarskiptamarkaði.
Anna Björk hefur verið drifkraftur í
stefnumótun og þróunarferli þessara
fyrirtækja og í fararbroddi hjá Símanum
í innleiðingu á samfélagslega ábyrgri
starfsemi, sem og hjá Festu, miðstöð um
samfélagsábyrgð fyrirtækja, þar sem hún
var stjórnarformaður og leiddi stofnun og
uppbyggingu þess félags.
AnnA Björk er
ráðgjAfi hjá
expectus.
Vegmúla 2, 108 Reykjavík, Sími 444 9800, expectus@expectus.is