Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 123
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 123
goods“ sem gæti náð árangri
á heimsvísu. Með character
goods á ég við vörur þar sem
heillandi persónur eru í lykil
hlutverki en sá markaður er
risa stór og má sem dæmi nefna
að árlegar tekjur fyrirtækisins
Sanrio af karakternum Hello
Kitty nema um fimm milljörðum
Bandaríkjadala.
Á þeim fjórum árum sem
fyrirtækið hefur starfað höfum
við byggt upp sterka gjafavöru
línu sem hefur verið seld til um
sextíu verslana í átta löndum.
Auk markvissrar vöruþróunar
og hönnunarvinnu hefur það
krafist mikillar vinnu við að
byggja upp tengsl við gæða
framleiðendur og þekkingu á
prófunum og öryggiskröfum
sem gerðar eru til varnings fyrir
börn.
Einnig hefur mikil reynsla
byggst upp á sviði útflutnings
en það er vissulega krefjandi
að stunda útflutning frá lítilli
eyju nyrst í Atlantshafi. Nú erum
við búnar að koma okkur upp
vöruhúsi í Bretlandi og þ.a.l. vel
í stakk búnar til að þjón usta
verslanir og samstafsaðila í
Evrópu.
Hvað fjármögnun varðar
ákváðum við strax í upphafi að
reyna að koma fyrirtækinu sem
lengst áður en við fengjum inn
utanaðkomandi fjárfesta. Við
byrjuðum á því að finna vörur
sem við gætum framleitt með
hagkvæmum hætti á Íslandi og
sett á markað fljótt til þess að
byrja að afla tekna. Við settum
fyrstu vörulínuna okkar á
mark að þremur mánuðum eftir
stofnun Tulipop og notuðum
afraksturinn af henni til að fjár
magna næstu vörur.
Við höfum verið mjög lán
samar að því leyti að íslenskir
kaup menn hafa tekið okkur
mjög vel og nokkrir þeirra verið
okkar helstu stuðningsmenn.
Sömuleiðis er ómetanlegt hversu
góð salan hefur verið á Tulipop
vörum hér á heimamarkaði og
mér finnst fátt skemmtilegra
en að taka á móti hópi af litlum
Tulipopaðdáendum.
Styrkir frá sjóðum hafa verið
okkur afar mikilvægir við að
fjármagna erlenda markaðs
sókn og má þar helst nefna
styrki frá Tækniþróunarsjóði.
Um mitt síðasta ár ákváðum
við svo að það væri orðið
tímabært að fá fjárfesta inn í
félagið svo að við gætum nýtt
öll þau tækifæri sem í boði eru
og styrkt fyrirtækið, þannig að
við fórum í hlutafjáraukningu
og seldum hlut í félaginu til
fjárfesta í lok árs 2013.
Á skrifstofu okkar í Reykja
vík fer öll hönnunarvinna
fram auk þess sem sölu og
markaðs starfi og fjármálum er
stýrt héðan. Í dag eru fimm á
skrifstofunni, þar af þrír starfs
menn í fullu starfi, en auk þess
vinnum við með fleiri aðilum
að ákveðnum verkefnum s.s.
kynningarverkefnum í Bretlandi
svo dæmi sé tekið.“
Á nafnið að segja eitthvað eða
er það bara út í loftið?
„Þegar við settumst niður
til að finna nafn á fyrirtækið
vildum við nafn sem passaði
við teikningarnar mínar, væri
skemmtilegt, einstakt og myndi
virka um allan heim.
Við notuðum Google translate
til að tryggja að nafnið myndi
ekki þýða neitt neikvætt á
erl endri grundu. Hins vegar
komst ég að því um daginn
að tuli á finnsku þýðir neisti og
passar því ágætlega við okkur.
Nafnið hefur reynst okkur mjög
vel og heyrum við oft frá fólki
víða um heim að því þyki nafn
ið skemmtilegt og öðruvísi.“
Framleiðslan – hvar fer hún
fram?
„Nær allar Tulipopvörurnar
eru í dag framleiddar í Asíu,
aðallega í Kína en einnig vinn
um við með framleiðendum í
Hong Kong og Taívan.
Við leggjum mikið upp úr að
vinna einungis með traustum
og góðum framleiðendum og
fáum m.a. viðurkennda aðila
til að gera úttekt á fyrirtækjum
áður en við hefjum samstarf við
þau.“
Hver skapaði „fígúrurnar“ sem
einkenna vöruna?
„Eins og ég nefndi hér áður
var ég búin að þróa ákveðinn
Signý Kolbeinsdóttir vöruhönnuður.