Frjáls verslun - 01.10.2006, Síða 73
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6 73
R Á Ð S T E F N A U M S A M F É L A G S L E G A Á B Y R G Ð
Ár hvert skila fyrirtæki ársskýrslum um
rekstur og fjárhagsstöðu, en undanfarin ár
er æ algengara að fyrirtæki skýri ekki síður
frá frammistöðu sinni á sviði samfélags- og
umhverfismála.
Þau fyrirtæki sem ganga hvað lengst
gefa út svokallaða „tripple bottom line“
skýrslu þar sem þessu þrennu er gert jafn-
hátt undir höfði.
Paul Scott rekur fyrirtækið Next Step
Consulting sem aðstoðar fyrirtæki við gerð
þessara skýrslna og jafnframt er fyrirtæki
hans með heimasíðuna CorporateRegister.
com þar sem birtar eru tæplega 13.000
skýrslur frá 3.456 fyrirtækjum í alls 88
löndum sem fjalla um samfélagslega og
umhverfislega frammistöðu fyrirtækja.
Frá árinu 1992 til 2005 hefur þessum
skýrslum, sem fjalla um annað en fjár-
hagslegan rekstur fyrirtækisins, fjölgað úr
því að vera aðeins örfáar á ári í að vera
rúmleg 2.000.
EKKERT ÍSLENSKT FYRIRTÆKI
HEFUR SKILAÐ CSR-SKÝRSLU
Global Reporting Initiative eru alþjóða-
samtök sem setja fram ákveðin viðmið
um það hvernig samfélags- og umhverf-
isskýrslur fyrirtækja skuli vera. GRI hefur
mótað ákveðinn ramma sem fyrirtæki
geta farið eftir við skýrslugerðina til þess
að auðvelda hagsmunaaðilum að bera
saman árangur fyrirtækja á sviði sam-
félagslegrar ábyrgðar.
Síðastliðin 14 ár hafa Bretland,
Bandaríkin og Japan verið í fararbroddi
varðandi þessa skýrslugerð, en nú á síð-
ustu árum hafa spænsk fyrirtæki sótt í sig
veðrið og þar er aukningin mest af þeim
löndum sem á annað borð fara eftir GRI-
viðmiðunum.
Ekkert íslenskt fyrirtæki hefur enn
unnið skýrslu sem fjallar sérstaklega um
umhverfis- og samfélagsmál. Halla Tóm-
asdóttir, framkvæmdastjóri Viðskipta-
ráðs Íslands, sem stjórnaði pallborðs-
umræðum á ráðstefnu HR og KOM
um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, sagði
að Viðskiptaráð væri alltaf að reyna að
hjálpa fyrirtækjum við að auka gegnsæi
og létta þeim byrðar.
Hún spurði Scott hvort þarna væri
ekki bara að bætast við enn eitt verkefnið,
hvort það væri ekki innri vinna fyrirtæk-
isins sem skipti meira máli en skýrslan.
Scott svaraði að þetta ætti að geta haldist
í hendur því það er ekki nóg að skrifa
skýrsluna ef ekkert er innihaldið. Það
væri það sem skiptir máli og lengd skýrsl-
unnar væri því ekki meginmálið.
Hlutfall af árlegum hagnaði
Föst árleg fjárhæð
Almennt mat stjórnenda/
eigenda á þörf á hverjum tíma
Annað
HVAÐ RÆÐUR FJÁRHÆÐINNI?
M
jö
g
m
ik
il
áh
rif
Fr
ek
ar
m
ik
il
áh
rif
H
vo
rk
i m
ik
il
né
lí
til
á
hr
if
Fr
ek
ar
lí
til
á
hr
if
M
jö
g
lít
il
áh
rif
M
jö
g
m
ik
il
áh
rif
Fr
ek
ar
m
ik
il
áh
rif
H
vo
rk
i m
ik
il
né
lí
til
á
hr
if
Fr
ek
ar
lí
til
á
hr
if
M
jö
g
lít
il
áh
rif
ÁHRIF SKATTAAFSLÁTTAR
HVAÐA GÓÐGERÐARMÁL STYRKT?
Heilbrigðismál
Líknarmál
Íþróttamál
Menningu og listir
Menntamál
Umhverfismál
Annað
Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, og Halla
Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, hlusta á orð ræðumanna alvarleg í
bragði. Ljósmynd: Fréttablaðið.
að hún yrði lögð fram á aðalfundi Glitnis í
byrjun næsta árs.
Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir skýrði
síðan frá frá niðurstöðum könnunarinnar
um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Hún
kom einning inn á það hvernig er að vera í
hópi þeirra sem njóta góðs af slíkri ábyrgð.
Hún þekkir vel til á þeim vettvangi þar sem
hún á fjölfatlað barn og er virkur þátttakandi
í Félagi einstakra barna og veit vel hverjar
eru þarfir þeirra sem minna mega sín í þjóð-
félaginu.
Skattaafsláttur hefur veruleg áhrif.
ENN SINNA FÁIR CSR SKÝRSLUGERÐ